Aðsent

Eitt sveitarfélag á Suðurnesjum skilið eftir í heilbrigðismálum
Föstudagur 22. september 2023 kl. 06:00

Eitt sveitarfélag á Suðurnesjum skilið eftir í heilbrigðismálum

Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á Suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.011 nú í byrjun þessarar viku. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir fimm árum var íbúafjöldinn um 3.400. Íbúum hefur því fjölgað um 600 manns á þessum fimm árum, eða um 17,5%.

Uppbygging í heilbrigðismálum á Íslandi hefur verið mikil á undanförum árum og hefur núverandi heilbrigðisráðherra verið vinnusamur þá daga sem hann hefur setið í embætti og lagt miklu vinnu í þau mikilvægu verkefni sem hann hefur verið að leysa hverju sinni, en með einhverju móti virðist Suðurnesjabær verða undir í þeim efnum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sú staðreynd blasir við að sveitarfélagið Suðurnesjabær er stærsta sveitarfélagið á Íslandi sem hefur ekki neina heilsugæslu eða hjúkrunarheimili og þurfa því íbúar að leita til annarra sveitarfélaga eftir heilbrigðisþjónustu. Ef mið er tekið af stærð er Suðurnesjabær eina sveitarfélagið á Íslandi sem stendur í þeim sporum.

Sveitarfélagið er með stórt og mikið verkefni í fanginu sem snýr að vegalausum börnum þar sem flugstöð Leifs Eiríkssonar er staðsett í Suðurnesjabæ og fellur því þessi málaflokkur sjálfkrafa á barnavernd sveitarfélagsins með tilheyrandi kostnaði sem það hefur í för með sér. Einnig eru uppi áform Vinnumálastofnunar um að koma með umsækjendur um alþjóðlega vernd sem telja 120 manns í Suðurnesjabæ, þvert á samþykki sveitarstjórnar.

Bæjaryfirvöld og íbúar í Suðurnesjabæ hafa lengi kallað eftir því að heilbrigðisþjónusta verði endurvakin í sveitarfélaginu líkt og hún var hér á árum áður til að tryggja grunnþjónustu í vaxandi samfélagi. Sveitarfélagið hefur nú þegar boðið fram hentugt húsnæði undir starfsemina sem bæði er vel staðsett, með nægum bílastæðum og fyrsta flokks aðgengi á jarðhæð.

Um er að ræða gríðarlega stórt réttlætismál fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, að heilbrigðisþjónusta verði í boði í sveitarfélaginu líkt og í öllum öðrum sveitarfélögum á Íslandi af þessari stærð.

Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ eru öll boðin og búin að hefja formlegar viðræður strax við heilbrigðisráðuneytið og forsvarsmenn HSS við fyrsta tækifæri svo að hægt sé að undirbúa húsnæðið sem Suðurnesjabær hefur upp á að bjóða undir slíka starfsemi. Ég skora á alla þingmenn í kjördæminu, hvar í flokki sem þeir standa, og ekki síst á heilbrigðisráðherra að beita sér af hörku svo að þetta réttlætismál fyrir íbúa Suðurnesjabæjar nái fram að ganga sem allra fyrst, því ljóst þykir að málefnið er brýnt og þolir enga bið.

Anton Guðmundsson,
oddviti framsóknar í Suðurnesjabæ og formaður bæjarráðs.