Gunnar Kristinn Sigurðsson nýr markaðsstjóri Kadeco
Gunnar Kristinn Sigurðsson hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco.
Gunnar hefur áralanga reynslu sem stjórnandi á sviði markaðsmála og viðskiptaþróunar. Hann kemur til Kadeco frá KPMG þar sem hann leiddi viðskiptaþróun og markaðsmál. Þar stýrði hann markaðsteymi fyrirtækisins og tók þátt í fjölmörgum verkefnum, meðal annars í tengslum við vöruþróun, stefnumótun, stafræna umbreytingu og sjálfbærni.
Áður starfaði Gunnar sem markaðsstjóri hjá Isavia þar sem hann leiddi stefnumótun og framkvæmd markaðs- og samskiptamála fyrir Keflavíkurflugvöll og aðrar rekstrareiningar félagsins. Gunnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk meistaragráðu í alþjóðamarkaðsfræði í Strathclyde University í Skotlandi.
„Um er að ræða nýja stöðu hjá Kadeco og það er frábært að fá inn mann eins og Gunnar til liðs við okkur. Gunnar býr yfir mikilli reynslu af markaðsmálum og viðskiptaþróun bæði innanlands og erlendis. Markmiðið er að auka sýnileika K64 þróunaráætlunarinnar og þeirra fjölmörgu tækifæra sem eru til staðar á svæðinu umhverfis Keflavíkurflugvöll. Síðustu ár hafa að miklu leyti farið í mikilvægt markaðsstarf og samráð við framfylgd K64 þróunaráætlunarinnar. Næsta ár verður viðburðaríkt og við hjá Kadeco hlökkum mikið til að fá Gunnar til liðs við okkur,“ segir Pálmi Freyr Randversson.
„Það er spennandi að fá að taka við markaðsmálum Kadeco. Framtíðarsýnin er metnaðarfull og það eru gífurleg tækifæri í að efla og byggja upp svæðið í kring um Keflavíkurflugvöll,“ segir Gunnar Kristinn.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur það meginmarkmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll. Ný þróunaráætlun fyrir flugvallarsvæðið, K64, var kynnt í mars 2023. Kadeco hefur leitt vinnu við gerð áætlunarinnar í samstarfi við fjölda aðila bæði innlenda og erlenda. Þróunaráætluninni er ætlað að vera drifkraftur til aukinnar atvinnustarfsemi á svæðinu og styrkja Reykjanes sem aðlaðandi stað fyrir fólk til að búa á, starfa og heimsækja.





