Reykjanesbær ljósanótt
Reykjanesbær ljósanótt

Mannlíf

Missir ekki af kjötsúpunni og flugeldasýningu Ljósanætur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 5. september 2026 kl. 09:51

Missir ekki af kjötsúpunni og flugeldasýningu Ljósanætur

Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN er eins og starfstitillinn gefur til kynna mikill Njarðvíkingur og fylgir sínum liðum í gegnum súrt og sætt. Það verður stórleikur hjá karlaliði félagsins á laugardegi á Ljósanótt þar sem mikið er í húfi. Kappinn fór með fjölskyldu um landið í sumar og á Ljósanótt ráða börnin í fjölskyldunni ferðinnHvernig varðir þú sumarfríinu?

Við ferðuðumst innanlands í sumar og vorum mest fyrir vestan, meðal annars á Ísafirði. Við fórum einnig í fimm daga í fjölskylduhús á Látrum í Aðalvík. Þá fórum við norður á Blönduós á vel heppnaða bæjarhátíð, Húnavöku. Annars nýttum við bara þá sólardaga sem gáfust hér fyrir sunnan.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Hvað stóð upp úr?

Vikan í Aðalvík stóð klárlega upp úr. Við reynum að fara þangað á hverju ári og hún stendur alltaf fyrir sínu. Það er svo gott að kúpla sig alveg frá öllum tækjum og áreiti.

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?

Það var líklega sólardagurinn 15. ágúst, þegar við ákváðum að skella okkur með stelpurnar okkar í rúnt um Suðurlandið. Við fórum í fjölskyldugarðinn Slakka og svo í Fontana á Laugarvatni. Fontana er nýuppgert baðlón sem er virkilega vel heppnað og kom skemmtilega á óvart.

Áttu þér uppáhalds stað til að heimsækja innanlands?

Já, það er Aðalvík, ekki spurning.

Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?

Það er alltaf nóg að gera. Yngri stelpan er að byrja í leikskóla og allt að detta í ágætis rútínu. Ætli ég finni mér ekki eitthvað skemmtilegt verkefni heima fyrir ef gefst einhver tími til þess utan vinnu.

Hvernig finnst þér Ljósanótt?

Mér finnst Ljósanótt frábær. En eins og með allar þessar bæjarhátíðir þá skiptir veðrið allt of miklu máli.

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?

Það er stórleikur á JBÓ-vellinum klukkan tvö á laugardeginum sem ég hlakka mest til. Ég hvet alla Njarðvíkinga til að mæta í þá veislu! Svo eru það auðvitað Kjötsúpan og flugeldasýningin. Annað er kannski óákveðið, ég leyfi börnunum að ráða ferðinni.

Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?

Ég á reyndar mjög góðar minningar frá Ljósanótt 2019. Þá fórum við á frábæra útitónleika á laugardagskvöldinu og nutum óvenju glæsilegrar flugeldasýningar. Seinna um nóttina missti Anna, konan mín, vatnið og tveimur sólarhringum síðar eignuðumst við okkar fyrsta barn. Ljósanótt það árið er því ansi eftirminnileg!

Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?

Nei, ég hef nefnilega haft þetta mjög opið. Það er mikið í gangi og ekkert mál að breyta til. Það hefur þó verið fastur liður að Njarðvík spili fótboltaleik þessa helgi og af því missi ég ekki.

Bílakjarninn
Bílakjarninn