Ást & hatur – málþing til heiðurs Ingibjörgu Sigurðardóttur
Sunnudaginn 21. september næstkomandi verður haldið málþing til heiðurs Ingibjörgu Sigurðardóttur rithöfundar í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Málþingið ber yfirskriftina Ást & hatur og stendur frá kl. 14 til 16.
Dagskrá málþingsins er fjölbreytt og varpar ljósi á verk Ingibjargar með ólíkum hætti.
-
Málþingið verður sett af Margréti I. Ásgeirsdóttur, forstöðukonu safna í Suðurnesjabæ.
-
Vilborg Rós Eckard bókmenntafræðingur fjallar um Ingibjörgu og verk hennar.
-
Bylgja Baldursdóttir skólastjóri Sandgerðisskóla flytur formannavísur.
-
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir söngkona frumflytur tvö lög við ljóð Ingibjargar með Hauki Arnórssyni píanóleikara.
-
Leikfélag Keflavíkur flytur leiklestur úr bókum Ingibjargar.
-
Katrín Pétursdóttir flytur ljóðalestur.
Í kaffihléi verður boðið upp á kaffi og kökur frá Kvenfélaginu Gefn, en ágóðinn rennur til góðra málefna.
Sýning á bókarkápum
Samhliða málþinginu verður sýning á 30 bókarkápum sem gefur gestum innsýn í útgáfusögu Ingibjargar.
Opið öllum
Aðstandendur hvetja bæjarbúa og aðra áhugasama til að mæta. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin í Samkomuhúsið í Sandgerði sunnudaginn 21. september.