Íþróttir

Keflavík vann Tindastól og er efst í B-riðli
Keishana Washington fór mikinn með Keflavík. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 5. mars 2026 kl. 11:19

Keflavík vann Tindastól og er efst í B-riðli

Keflavík vann Tindastól í leik liðanna í B-riðli Bónus deildar kvenna í körfubolta í Blue höllinni í gærkvöldi. Lokatölur urðu 77-67, tíu stiga sigur bítlabæjarliðsins sem er í efsta sæti riðilsins.

Jafnt var með liðunum í fyrri hálfleik og munaði leiddu heimakonur með einu stigi í hálfleik. Keflavík var sterkara í síðari hálfleik og tryggði sér mikilvægan sigur. Keishana Washington átti enn einn stórleikinn fyrir Keflavík. Hún skoraði 31 stig og tók 16 fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir var næst með 15 stig.

Röð liðanna í riðlunum mun raða þeim upp í úrslitakeppninni. Keflavík er með 22 stig en Stjarnan 20 en leik meira. Haldi Keflavík efsta sæti riðilsins fyrir úrslitakeppni mun liðið leika gegn liðinu í 3. sæti í fyrstu umferð úrslitanna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Keflavík-Tindastóll 77-67 (15-13, 24-25, 20-14, 18-15)

Keflavík: Keishana Washington 31/16 fráköst/5 stoðsendingar, Anna Ingunn Svansdóttir 15/5 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 14, Agnes María Svansdóttir 7/4 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4/6 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 3, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2, Angelina Turmel 1/5 fráköst, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Sofie Tryggedsson Preetzmann 0/7 fráköst, María Jónsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0.

Tindastóll: Marta Hermida 26/5 fráköst/6 stoðsendingar, Madison Anne Sutton 22/12 fráköst, Roselis Silva 8/5 fráköst/7 stoðsendingar, Oceane Kounkou 5, Rannveig Guðmundsdóttir 4, Inga Sólveig Sigurðardóttir 2, Eva Run Dagsdottir 0, Emma Katrín Helgadóttir 0, Brynja Líf Júlíusdóttir 0.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Stefán Kristinsson, Guðmundur Ragnar Björnsson

Áhorfendur: 75