Samstarf um sérnám í bráðalækningum á HSS
Landspítali og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, undirrituðu þann 27. febrúar formlegt samstarf um sérnám í bráðalækningum. Báðar stofnanir skuldbinda sig til samhæfingar varðandi gæði náms og framkvæmd þess.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þjónustu á bráðamóttöku á HSS að vera viðurkennd bráðamóttaka fyrir sérnám í bráðalækningum. Þessi áfangi er mikilvægt skref í vegferð HSS að verða viðurkennt kennslusjúkrahús en mikilvægt er að lyflækningar á HSS verði einnig viðurkenndar, en heilsugæsla HSS hefur um árabil verið viðurkenndur kennslustaður fyrir sérnám í heimilislækningum,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, samtali við Víkurfréttir.
Sérnám í greinum innan læknisfræðinnar fer samkvæmt gildandi reglugerð nr. 856/2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. Sérnám fer fram samkvæmt marklýsingu hverrar einstakrar greinar sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfisnefnd, sem starfar á forræði heilbrigðisráðuneytisins.
Sérnámslæknar er stór og jafnframt vaxandi hluti af starfandi læknum landsins. Á undanförnum árum hefur mikil þróun átt sér stað í uppbyggingu sérnáms á Íslandi í samræmi við viðurkennda alþjóðlega staðla.




