Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Miðflokkurinn með framboð í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 4. mars 2026 kl. 09:41

Miðflokkurinn með framboð í Reykjanesbæ

Aðalfundur Miðflokksdeildar Reykjanesbæjar var haldinn föstudaginn 6. febrúar sl. á Hótel Park Inn þar sem ákveðið var að bjóða fram til sveitarstjórnar í kosningunum 16. maí 2026. 

Undirbúningur hefur staðið yfir síðan og áhugasamir um sæti á framboðslista flokksins hvattir til að skrá sig á [email protected].  Einnig hefur framboðið opnað Facebook grúppuna Karpið X-M Reykjanesbæ sem er umræðuvettvangur um bæjarmál.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Formlega hefst framboðið með opnum fundi fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00 á Park Inn by Radisson að Hafnargötu 57 þar sem m.a. Sigmundur Davíð, Karl Gauti og Snorri Másson sitja fyrir svörum og ræða við gesti og gangandi.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, segir í fréttatilkynningu frá Miðflokknum.