Þriðjudagur 3. mars 2026 kl. 14:51

20. fundur Járngerðar 2. mars 2026: Skref sem markar upphaf raunverulegrar uppbyggingar

Á tuttugasta fundi hagsmunasamtakanna Járngerðar kom fram að stórt skref hefði verið stigið í endurreisn Grindavíkur með ákvörðun bæjarstjórnar um að auglýsa stöðu skólastjóra fyrir leik- og grunnskóla bæjarins. Fundarmenn fögnuðu þessu skrefi og telja það marka upphaf raunverulegrar uppbyggingar á ný í samfélaginu. Til að fylgja þessu eftir verður haldin vinnustofa fyrir íbúa þar sem skólamálin verða rædd og framtíðarsýn þeirra mótuð undir stjórn sérfræðinga.

Sigurður R. Karlsson hjá áhaldahúsi bæjarins upplýsti á fundinum að markviss vinna stæði nú yfir við að loka og gera við stórar sprungur í bænum. Ferlið er komið á fullt skrið og er nú þegar unnið að viðgerðum á þremur stöðum, meðal annars við Hópsskóla, Landsbankann og íþróttahúsið. Samhliða þessu er hafið skipulagt niðurrif húsa sem standa á hættusvæðum eða sprungum, en það verkefni er forsenda þess að hægt sé að gera umhverfið öruggt og hefja frekari uppbyggingu. Lögð var áhersla á að eigendur húsa á þessum svæðum þyrftu að veita samþykki sitt fyrir niðurrifi svo bærinn gæti leitt verkið áfram.

Mikið var rætt um öryggismál og mikilvægi þess að upplýsingar um ástand sprungna séu aðgengilegar og áreiðanlegar. Skýringar fengust á því hvers vegna opinber mæligögn virðast ekki hafa breyst frá miðju síðasta ári, en það skýrist af því að sprungur hreyfast nánast eingöngu í kjölfar jarðhræringa. Jarðfræðingar fylgjast daglega með svæðinu og hafa mælingar sýnt að litlar sem engar breytingar hafa orðið á sprungum síðan í júlí síðastliðnum. Fundarmenn lögðu ríka áherslu á að þessum upplýsingum yrði miðlað betur til almennings til að eyða óvissu og auka traust þeirra sem íhuga að snúa aftur í bæinn.

Að lokum var farið yfir ýmis verkefni sem lúta að félags- og menningarlífi, þar á meðal samstarfsverkefnið Saman í sókn. Hugmyndavinna þess hóps er langt komin og stefnt er að því að stofna félag og ráða starfsmann til að halda utan um framkvæmdir. Jafnframt var greint frá því að hestamannafélagið Brimfaxi hefði haldið fjölmennt mót um síðustu helgi sem sýni að mikill hugur sé í fólki og vaxandi kraftur í starfsemi félaga í Grindavík þrátt fyrir erfiðar aðstæður.