Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Rokkið lifir hjá Leikfélagi Keflavíkur í Frumleikhúsinu
Miðvikudagur 4. mars 2026 kl. 10:49

Rokkið lifir hjá Leikfélagi Keflavíkur í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir föstudaginn 6. mars, rokksöngleikinn We Will Rock You, sem byggður er á lögum bresku rokkhljómsveitarinnar Queen. Verkið var frumflutt í London árið 2002 og sló í gegn á West End þar sem það gekk árum saman við miklar vinsældir. Handritið er eftir Ben Elton í samstarfi við Brian May og Roger Taylor úr Queen.

We Will Rock You er ekki ævisaga sveitarinnar heldur framsækin og húmorísk vísindaskáldsaga um frelsi, uppreisn og mátt tónlistarinnar. Sagan gerist langt inni í framtíðinni á plánetunni iPLANET þar sem heimurinn er orðinn einhæf neysluvél undir stjórn stórfyrirtækisins Globalsoft og hinnar illu Killer Queen. Öll lifandi tónlist, hljóðfæri og sjálfstæð hugsun hefur verið bönnuð – einungis sálarlaust og tölvuframleitt „popp“ fær að hljóma.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Í sýningunni fá áhorfendur að njóta fjölda þekktra laga Queen á borð við Bohemian Rhapsody, I Want to Break Free, I Want it All og að sjálfsögðu We Will Rock You, flutt af öflugum leikhópi Leikfélags Keflavíkur. Á þriðja tug einstaklinga á öllum aldri taka þátt í verkinu ásamt fimm manna hljómsveit sem leidd er af Sigurði Smára Hanssyni, formanni leikfélagsins.

Leikstjóri sýningarinnar er Kristín Lea Sigríðardóttir, sem steig sín fyrstu skref í leiklist innan veggja Frumleikhússins, og danshöfundur er Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi DansKompaní. Þær hafa, ásamt stórum hópi listrænna stjórnenda, unnið hörðum höndum að því að setja upp eina glæsilegustu sýningu Leikfélags Keflavíkur til þessa.

Það er hægt að nálgast miða á sýninguna á tix.is.