Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Búast megi við fremur fámennum hópi barna í skólastarfið
Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
Þriðjudagur 3. mars 2026 kl. 10:53

Búast megi við fremur fámennum hópi barna í skólastarfið

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt að hefja skólahald í leikskóla í heimabyggð haustið 2026. Jafnframt verður látið reyna á hvort forsendur séu fyrir því að hefja kennslu í yngri bekkjum grunnskóla á sama tíma. Ákvörðunin er sögð mikilvægt skref í að skapa fjölskyldum í bænum aukinn stöðugleika og fyrirsjáanleika.

Á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar síðastliðinn var mikið rætt um endurreisn skólastarfs en samstaða ríkti um að farsæld og öryggi barna yrði haft að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku. Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs hefur þegar verið falið að auglýsa stöðu skólastjóra lausa til umsóknar fyrir samrekinn leik- og grunnskóla bæjarins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Fámennt en mikilvægt skref

Niðurstöður nýlegrar könnunar um eftirspurn gefa til kynna að búast megi við fremur fámennum hópi barna í skólastarfið til að byrja með. Samkvæmt skráningu eru fjórtán nemendur á grunnskólaaldri og þrjú börn sem uppfylla skilyrði fyrir inntöku í leikskóla fyrir haustið 2026. Þrátt fyrir þessar hóflegu tölur telur meirihluti bæjarstjórnar nauðsynlegt að stíga þessi skref núna til að styðja við þær fjölskyldur sem vilja flytja heim.

Í bókun sex bæjarfulltrúa kemur fram að ákvörðunin sé innan ramma fjárhagsáætlunar og að hún styðji við aðra þjónustu í bænum, svo sem matvöruverslun og fyrirtæki sem þegar hafa hafið starfsemi. Litið er á opnun skóla sem hornstein í þeirri vegferð að fá líf í bæinn á nýjan leik með stuðningi annarra stjórnvalda.

Skiptar skoðanir um forsendur

Ekki voru allir bæjarfulltrúar á sama máli um að forsendur væru nægilega skýrar til að hefja undirbúning skólastarfs strax. Birgitta Hrund Ramsay Káradóttir sat hjá við afgreiðslu málsins og vísaði meðal annars til áðurnefndra talna úr eftirspurnarkönnuninni máli sínu til stuðnings.

Í bókun sinni benti Birgitta á að vænlegra væri að svo stöddu að styðja við starfsemi dagforeldra og kanna leigu á hentugu húsnæði fyrir þá starfsemi. Með því móti mætti mæta þörfum barnafjölskyldna með sveigjanlegri hætti án þess að ráðast í umfangsmikinn undirbúning skólastarfs á meðan mikil óvissa ríkir enn um búsetuform og framtíðarskipulag bæjarins.