Fyrsta „saunagusan“ á Suðurnesjum
Í lok nóvembermánaðar sl. tók til starfa fyrsta svokallaða „saunagusan“ á Suðurnesjum en um er að ræða þekkt fyrirbæri af skandinavískum uppruna þar sem gufubað og kæling mætast. Gusur fara fram undir handleiðslu svokallaðs „gusumeistara“ sem sér um að stýra hitanum og stemmningunni hverju sinni. Tímarnir eru þrjár 15 mínútna lotur þar sem fólk kælir sig ýmist í sjó, vatni eða í ferska loftinu á milli. Saunagus hefur vaxið mikið í vinsældum á Íslandi síðustu misseri og fer hópur þeirra sem stunda gusur sífellt vaxandi.
Saunagus Reykjanes er staðsett í Vogunum í huggulegu umhverfi þar sem nálægð við sjó og ferskvatn gefur kjöraðstæður til þess að upplifa saunagus. Starfsemin er rekin af systrunum Petru Ruth og Thelmu Rún Rúnarsdætrum ásamt Sigurði Friðriki Gunnarssyni en ásamt því að standa í rekstrinum eru þau í hlutverki gusumeistara í leiddum tímum.
„Við höfðum verið að velta þessu fyrir okkur í svolítinn tíma áður en við fórum af stað í framkvæmdir. Útfærslan og staðsetningin var svona það sem við þurftum helst að pæla í en eftir að hafa skoðað aðstæður í Vogunum vorum við ákveðin í því að freista þess að koma á fót gusu þar. Við erum í góðu samstarfi við sveitarfélagið sem hefur tekið okkur gríðarlega vel og við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem okkur hefur verið veittur. Það var síðan mjög spennandi þegar við fengum þá hugmynd að innrétta iðnaðargám sem gufubað koma honum fyrir á svæðinu,“ segir Sigurður Friðrik þegar blaðamaður spurði hann út í hvernig hugmyndin hefði komið til.
„Gufubaðið stendur í 20 feta iðnaðargámi sem hefur verið breytt eftir öllum stöðlum til að standast kröfur og erum við með starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Við festum kaup á viðarkynntum saunaofni og öllum innréttingum frá fyrirtæki í Finnlandi sem sérhæfir sig í þessum efnum og erum við mjög sátt við útkomuna,“ segir Petra Ruth en þær systur ásamt foreldrum og bróður þeirra sem stóðu í framkvæmdunum allt síðasta sumar.
„Það má alveg segja að þetta sé fjölskylduverkefni. Pabbi og Gunnar bróðir eiga stóran þátt í þessu og hafa reynst okkur ómetanlegir í framkvæmdunum. Svo hefur mamma líka komið að þessu með ýmsum hætti, t.d. eru allar saumahúfurnar saumaðar af henni og hafa vakið athygli enda eru þær mjög flottar og gera mikið gagn í tímunum okkar,“ bætir Thelma við.
Aðspurðir um viðtökurnar segjast þremenningarnir að það hafi komið þeim skemmtilega á óvart hversu vel hafi verið tekið í gusuna. „Það hefur bara verið framar vonum myndi ég segja. Við áttum alveg von á því að það væri eftirspurn eftir þessu en það hefur verið framar væntingum hingað til og gaman að sjá að það er fólk á öllum aldri að sækja þessa þjónustu,“ segir Sigurður.
„Við erum að bjóða upp á bæði opna tíma, þar sem hver getur notið á sínum forsendum, sem og tíma undir handleiðslu þar sem hitastigi, tónlist og notkun á olíum er stýrt af gusumeistara og oft eru þeir tímar þematengdir. Við vorum t.d. með Celine Dion sing-along tíma á dögunum sem seldist upp á innan við klukkutíma og við bættum við öðrum tíma til að svala þeirri eftirspurn. Það mun verða töluvert úrval af þematengdum tímum þegar fram í sækir,“ segir Petra.
Mikið hefur verið rætt og ritað um heilsufarslegan ávinning gufubaða og segir Thelma það ekki vera á sandi byggt. „Það er engin spurning og fjölmargar rannsóknir sýna fram á margþættan ávinning fyrir bæði líkamlega og andlega heilsu að stunda gufuböð. Þar má nefna sem dæmi ávinning fyrir hjarta- og æðakerfi, húð, endurheimt vöðva og líkamlega vellíðan almennt. Þá er einnig þessi ávinningur sem hlýst af því að bæta kælingunni við sem lækkar myndun streituhormóna og bætir svefngæði, svo eitthvað sé nefnt.“
Hægt er að kynna sér Saunagus Reykjanes betur á heimasíðu fyrirtækisins www.saunagusreykjanes.com en einnig er haldið úti síðu á Facebook og á Instagram.









