Sóttu vélarvana bát sem rak í átt að landi
Skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi var björgunarskipið Hannes Þ. kallað út á næstmesta forgangi (F2) vegna vélarvana báts, Óla á Stað GK, sem rak hægt í átt að landi rétt út af Sandgerði.
Björgunarskipið lagði strax af stað og náði að bátnum um hálf eitt í nótt, eða klukkan 00:37. Aðstæður á vettvangi voru þannig að mikilvægt var að ná bátnum áður en hann nálgaðist landið um of.
Aðgerðir gengu mjög vel og tókst áhöfn björgunarskipsins fljótt að koma taug yfir í bátinn. Hann var í kjölfarið dreginn til hafnar í Sandgerði þar sem hann var festur við bryggju. Öllum aðgerðum var lokið um klukkan hálf tvö í nótt og gátu björgunarsveitarmenn þá snúið aftur til síns heima.




