Segir vinnu bæjarins í leikskólamálum „mjög ábótavant“
Birgitta Rún Birgisdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, gagnrýnir harðlega stöðu leikskólamála í Reykjanesbæ og segir vinnu bæjarins í málaflokknum „mjög ábótavant“. Hún kallar eftir heildstæðri greiningu og segir biðlista eftir leikskólaplássi mun lengri en í öðrum sveitarfélögum.
Bókun Birgittu var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 17. febrúar, þegar fundargerð menntaráðs frá 6. febrúar var til umræðu. Þar segir hún einnig að Reykjanesbær standi „afar illa að vígi“ þegar kemur að því að taka börn inn í leikskóla við 18 mánaða aldur, sem hafi verið lofað síðustu tvö kjörtímabil. Að hennar mati sé staðan í Reykjanesbæ verri en í öðrum sambærilegum sveitarfélögum.
Í bókuninni er bent á að skortur sé á gögnum, sannreyndum tölum og samanburðargreiningu til að hægt sé að bæta stöðuna markvisst. Slíkt hamli því að gera gangskör í málinu og að lokum sé það samkeppnishæfni sveitarfélagsins sem verði fyrir skaða þegar leikskólamál séu í ólestri.
Að bókuninni stóðu þau Birgitta Rún Birgisdóttir, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson fyrir Sjálfstæðisflokk, auk Margrétar Þórarinsdóttur fyrir Umbót.





