Ágreiningur og byggingargallar settu leikskólaverkefni í uppnám
– nýir verktakar tóku við eftir að aðalverktaki fór af verkinu
Nýr leikskóli, Drekadalur, var formlega opnaður í Dalshverfi í Innri-Njarðvík á dögunum. Framkvæmdin var alls ekki gallalaus og eftir verulegan ágreining og alvarlega byggingargalla í fyrri hluta verksins var ákveðið að skipta byggingu leikskólans upp í tvo afmarkaða fasa. Þetta segir Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri Eignaumsýslu Reykjanesbæjar.
Í upphafi var samið við Hrafnshól ehf. um fullnaðarhönnun og byggingu leikskólans með tilboði upp á 864 milljónir króna. Reykjanesbær lagði til sökkla, plötu og lóðarfrágang en samkvæmt verksamningi átti verktaki að skila húsinu fullbúnu og tryggja að það uppfyllti kröfur um hljóðvist, brunavarnir og gildandi reglugerðir og staðla. Á verktíma kom upp verulegur ágreiningur um umfang verksins, meðal annars þar sem verktaki hélt því fram að innréttingar og búnaður féllu ekki undir tilboðið þrátt fyrir ákvæði samnings þess efnis.
Hreinn segir að á framkvæmdartímanum hafi komið fram alvarlegir gallar og dæmi um slæm vinnubrögð. Vegna ófullnægjandi hönnunar hafi húsið meðal annars lekið með tilheyrandi skemmdum á byggingarefnum, auk þess sem víða hafi verið mjög slæmur frágangur á gluggaísetningu og uppsetningu rakavarna. Verktakinn hafi farið í lagfæringar á sinn kostnað og uppbyggingu útveggja hafi verið breytt úr timbri í álklæðningu, en starfsmenn eignaumsýslu hafi jafnframt tekið yfir 100 myglusýni fyrir og eftir þrif á byggingarefnum til að tryggja heilsusamlegt húsnæði.
Aðalverktaki fór af verkinu í desember 2024 og var dómkvaddur matsmaður fenginn til að meta stöðu verksins og heildartjón verkkaupa, en endanlegt tjón liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Seinni fasinn hófst í febrúar 2025 og reyndist þá þörf á mun meira niðurrifi í Drekadal en upphaflega var áætlað til að leiðrétta galla. Niðurrif og lagfæringar stóðu yfir fram í maí 2025 og í kjölfarið tók við uppbygging að nýju með fjölda fagaðila.
Tengill ehf. sá um raflagnir, Benni pípari sá um pípulagnir, Húsagerðin og M-lausnir sáu um innanhússmíðavinnu, Kjarnabyggð um utanhússmíðavinnu, Vogaklettur sá um lóðarfrágang, Stjörnublikk sá um blikksmíði, Epoxý gólf sá um gólfefni, Sveinsmálun og JRJ sáu um málun, Martin Gluggar sáu um glugga og hurðir og JeEs Arkítektar gegndi hlutverki hönnunarstjóra.
Hreinn segir að þrátt fyrir að umfang galla hafi verið meira en gert var ráð fyrir hafi samstarf við nýja verktaka gengið vel og verkinu miðað jafnt og þétt áfram í átt að fullnaðarfrágangi. Þá bendir hann á að Hrafnshóll ehf. hafi nú verið úrskurðað gjaldþrota og að umtalsverð vinna hafi fallið á verkkaupa til að ná utan um stöðuna og tryggja gæði verksins.
Við formlega opnun Drekadals kom fram að almenn ánægja væri með hvernig til hafi tekist að endingu. Húsið hefur þó ekki allt verið tekið í notkun en Drekadalur verður kominn í full not á vormánuðum.




