Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Grindavíkurhöfn greiðir upp 15 ára lán sex árum eftir að það var tekið
Frá Grindavíkurhöfn. VF/Jón Steinar Sæmundsson
Sunnudagur 1. mars 2026 kl. 08:38

Grindavíkurhöfn greiðir upp 15 ára lán sex árum eftir að það var tekið

Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að Grindavíkurhöfn geri upp langtímalán sitt við aðalsjóð sveitarfélagsins, miðað við stöðu lánsins 31. desember 2025.

Um er að ræða 15 ára lán sem var tekið árið 2020 að upphaflegri fjárhæð 456 milljónir króna. Samkvæmt gögnum sem lögð voru fyrir bæjarráð var staða lánsins um síðustu áramót tæpar 381 milljónir króna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 17. febrúar 2026 og var uppgreiðsla lánsins samþykkt.