Fasteignagjöld felld niður á altjónshús og afgirtar eignir
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur 10. febrúar 2026 var farið yfir álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026, sem nú er lokið, og lagt fram yfirlit yfir álögð gjöld. Í kjölfarið samþykkti bæjarráð að fella niður fasteignagjöld ársins 2026 á mannvirki sem metin eru altjónuð. Lagður var fram listi frá NTÍ yfir þau hús sem falla undir það mat.
Í sérstakri afgreiðslu vegna Víkurbrautar 46 var tekið fram að um altjónshús væri að ræða og yrðu fasteignagjöld 2026 því felld niður í samræmi við bókun bæjarráðs í málinu um altjónshús.
Þá samþykkti bæjarráð einnig að fella niður fasteignagjöld 2026 af húsnæði sem hefur verið afgirt samkvæmt ákvörðun almannavarna eða Grindavíkurnefndar, þar sem umgengni um lóð og mannvirki er óheimil af öryggisástæðum. Í því samhengi var erindi vegna Fálkahlíðar 1–5 samþykkt.




