Fréttir

Framboðslisti Framsóknar í Reykjanesbær birtur
Sunnudagur 1. mars 2026 kl. 15:31

Framboðslisti Framsóknar í Reykjanesbær birtur

Framboðslisti Framsóknar í Reykjanesbæ var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi í gær. Prófkjör var haldið um efstu fjögur sætin og leiðir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri listann áfram. 

Í öðru sæti er Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari, í þriðja sæti er Díana Hilmarsdóttir forstöðumaður Bjargarinnar og í fjórða sæti er Birgir Már Bragason framkvæmdastjóri Keflavíkur.

„Við erum stolt af afrekum okkar á kjörtímabilinu og erum reiðubúin að halda vinnunni áfram í nánu samráði við íbúa Reykjanesbæjar. Það er mikil breidd í aldri, þekkingu og reynslu í hópnum okkar og til okkar kom mikið af nýju og öflugu fólki, ekki síst ungt fólk, sem vill hafa áhrif í samfélaginu. Nú tekur við opið málefnastarf með íbúum. Það er mikill kraftur í okkar fólki og við hlökkum til að heyra hvaða áherslur íbúar vilja sjá á næstu árum. Raddir íbúa munu móta okkar stefnu,“, segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir í tilkynningu frá Framsókn.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Listi Framsóknar í Reykjanesbæ er eftirfarandi:

1 Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri

2 Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari

3 Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar

4 Birgir Már Bragasson, framkvæmdastjóri

5 Halla Karen Guðjónsdóttir, sérfræðingur

6 Sighvatur Jónsson, tölvunarfræðingur og fjölmiðlamaður

7 Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri eldvarnareftirlits hjá BS

8 Eva Stefánsdóttir, deildarstjóri hjá Veitum

9 Þórarinn Darri Ólafsson, háskólanemi og leiðbeinandi

10 Hekla Sif Ingvadóttir, framhaldsskólanemi

11 Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri og bílasali

12 Àsta María Guðmundsdóttir, forstöðumaður

13 Hrafnkell Freyr Ágústsson, málari

14 Birna Ósk Óskarsdóttir, aðstoðarskólastjóri Stapaskóla

15 Karítas Lára Rafnkelsdóttir, sálfræðingur hjá HSS

16 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstýra fjölskyldusviðs

17 Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri

18 Steinunn Valsdóttir, markaðsfræðingur

19 Yasmin Petra Younesdóttir, framhaldsskólanemi

20 Bjarney Rut Jensdóttir, lögfræðingur

21 Kristinn Þór Jakobsson fyrrv. bæjarfulltrúi

22 Jóhann Friðrik Friðriksson, varaþingmaður