Markvisst unnið að sprunguviðgerðum og niðurrifi í Grindavík
Mikilvægur áfangi stendur nú yfir í endurreisn Grindavíkur þar sem markvisst er unnið að því að tryggja öryggi og endurbyggja innviði bæjarins. Markmiðið með framkvæmdunum er að tryggja yfirborð í bæjarlandinu svo hægt sé að draga úr lokunum og fækka afgirtum hættusvæðum.
Verkefnið er umfangsmikið og er unnið í nánu samstarfi Grindavíkurbæjar, Vegagerðarinnar og Grindavíkurnefndar. Öryggismál og eftirlit eru höfð í hávegum og er framkvæmdum fylgt eftir með ítarlegu áhættumati, reglulegri vöktun og skýrum verkferlum til að tryggja öryggi íbúa og þeirra sem starfa á svæðinu.
Samgönguæðar tryggðar og lokahnykkur hafinn
Viðgerðir hófust haustið 2024 með fyrstu aðgerðaáætlun þar sem brýnustu samgönguæðar og lagnainnviðir voru í forgangi og er þeim áfanga nú lokið. Eftir áramót tók við önnur aðgerðaáætlun sem hefur það markmið að ljúka öllum sprunguviðgerðum innan þéttbýlisins. Til að tryggja gæði var gerður rammasamningur við ellefu verktaka og er hverju svæði úthlutað í gegnum örútboð.
Í janúar hóf verktakafyrirtækið G.G. Sig viðgerðir á Hópssprungu við Hópsskóla og á dögunum var skrifað undir samning við Jón og Margeir um viðgerðir á Stamphólsgjá á lóð íþróttahússins, auk viðgerða á Víðihlíðarsprungu við Efrahóp. Góður gangur er í því að koma verkefnum til verktaka og eru bundnar vonir við að eftir því sem líður á sumarið muni afgirtum hættusvæðum í bænum fækka verulega, íbúum og atvinnulífi til heilla.
Niðurrif altjónaðra húsa er forsenda frekari viðgerða
Stór hluti þeirra húsa sem urðu fyrir altjóni í hamförunum stendur ofan á sprungum. Til að hægt sé að gera við þær er óhjákvæmilegt að rífa húsin fyrst. Grindavíkurbær leiðir þetta verkefni og hefur boðið eigendum þessara eigna að taka þátt í því. Líkt og með sprunguviðgerðirnar var gerður rammasamningur við níu verktaka haustið 2025 um niðurrifið.
Fyrsta örútboðinu er þegar lokið en þar var samið um niðurrif á húsunum við Mánagerði 2 og Mánagötu 19 og 21. Næstu útboð eru í vinnslu og er stefnt að því að niðurrif húsa verði komið vel á veg þegar líður á sumarið. Samhliða þessu hvetur Grindavíkurbær eigendur altjónaðra húsa, sem ekki hafa þegar óskað eftir upplýsingum um niðurrifsverkefnið, til að kynna sér málið og vera í sambandi við bæinn.
Myndirnar með fréttinni birtust á síðu Grindavíkurbæjar á Facebook.






