Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Langt goshlé ekki vísbending um að eldgosahrinunni sé lokið
VF/mynd: Ísak Atli Finnbogason
Þriðjudagur 3. mars 2026 kl. 15:36

Langt goshlé ekki vísbending um að eldgosahrinunni sé lokið

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur en innstreymi kviku er sagt hægt og stöðugt. Samkvæmt nýjustu líkanreikningum hafa nú safnast um 22,5 milljónir rúmmetra af kviku frá því að síðasta eldgosi lauk í júlí í fyrra. Þetta er lengsta samfellda kvikusöfnunartímabilið frá því að eldgosahrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst í desember árið 2023, eða um 210 dagar.

Verði framhaldið með sama hraða má gera ráð fyrir að í næstu viku verði það magn kviku sem safnast hefur á milli gosa orðið það mesta frá upphafi hrinunnar. Vegna þessa mikla magns og lengdar tímabilsins vinnur Veðurstofan nú að endurskoðun á sviðsmyndum um mögulega framvindu eldvirkninnar og verða þær kynntar á næstu vikum. Sérfræðingar benda á að þótt langt goshlé sé til staðar sé það ekki vísbending um að eldgosahrinunni sé lokið.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Lítil jarðskjálftavirkni mælist nú yfir kvikuganginum og hefur dregið úr skjálftum við Víkur. Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og hefur gildistími þess verið framlengdur til 31. mars næstkomandi. Áfram verður fylgst náið með þróun mála og hættumatið uppfært ef breytingar verða á virkninni á svæðinu.