Bestu pílarar landsins í Ljónagryjunni um helgina
Ljónagryfjan sem hefur verið einn þekktasti keppnisvöllur körfuboltamanna á Suðurnesjum tekur á sig nýja mynd um helgina en þá fer fram Reykjanes Open í pílukasti.
Í frétt frá Pílufélagi Reykjanesbæjar segir að allir fremstu spilarar landsins muni mæta til leiks og verða úrslitin á laugardag 28. febrúar kl. 18. Úrslitin verða m.a. sýnd á stórum skjá í salnum.
Heildarvinningsupphæð í mótnu verður ein milljón króna. Þá verður boðið upp á happdrætti fyrir áhorfendur en aldurstakmark er 18 ára.



