Miðflokkurinn stærstur í Suðurkjördæmi
Miðflokkurinn mælist stærstur í Suðurkjördæmi í nýrri skoðanakönnun Gallup og RÚV með 27% og þrjá þingmenn en Sjálfstæðisflokkurinn kemur skammt á eftir með 24% og fær líka þrjá þingmenn.
Samfylking fær 20% í þessari könnun og tvo þingmenn. Framsókn mælist með 9,4% og fær einn þingmann. Aðrir flokkar ná ekki þingmanni.
Flokkur fólksins sem var stærstur í síðustu alþingiskosningum með 20% og tvo þingmenn mælist með 7,7% og nær ekki manni. Viðreisn fær 6% og nær sömuleiðis ekki manni. VG mælist með 2,5% og Píratar 1,2%.
Miðflokkurinn gaf út í vikunni að hann myndi bjóða fram í Reykjanesbæ í komandi bæjarstjórnarkosningum og boðar til fundar í dag, fimmtudag.






