Eins og að byrja aftur í meistaraflokki
Njarðvíkingurinn Veigar Páll Alexandersson er nýr landsliðsmaður í körfubolta
Veigar Páll Alexandersson, körfuknattleiksmaður í Njarðvík, mætti nýlega á sína fyrstu æfingu með A landsliði karla eftir að hafa verið valinn í landsliðshópinn. Hann segir þetta bæði skemmtilegt og krefjandi, enda séu gæðin mikil og lítið pláss fyrir mistök. „Þarna eru tólf leikmenn sem eru bara virkilega góðir,“ segir hann og bætir við að hann upplifi stöðuna svolítið eins og þegar hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki.
Hvernig er að mæta á landsliðsæfingu í fyrsta skipti, eftir að hafa verið í yngri landsliðum?
„Ég var í flestöllum yngri landsliðunum, en þetta er virkilega gaman,“ segir hann. Samt finni hann strax að hlutverkið sé öðruvísi sem nýliði í hópnum. Hann líkir því við að taka skref til baka, þar sem hann sé ekki sjálfkrafa í hópi þeirra sem leiða æfingarnar eða í lykilhlutverkum en Veigar Páll hefur verið besti maður Njarðvíkinga í vetur og einn lykilmanna síðustu árin..
„Þetta er eins og að taka skref til baka þegar maður var að byrja í meistaraflokki. Nú ertu ekki með fremstu mönnunum, nú ertu bara til hliðar og ert að horfa á aðra gera,“ segir hann og leggur áherslu á að það skipti mestu að nýta mínúturnar vel. „Þú verður að grípa tækifærin sem þú færð þarna inni á æfingu og gera vel.“
Baráttan um 12 manna hópinn
Veigar Páll er vanur að bera mikla ábyrgð með Njarðvík en með landsliðinu er hann að stíga inn í hóp sem hefur verið að þróast og styrkjast mikið síðustu ár. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort hann sjái fyrir sér að komast í 12 manna hópinn í leikina sem fram undan eru, einn heima og einn úti.
„Það væri geggjað, en það verður bara að sjá hvernig hann setur upp liðið. Ég geri mér vonir um að vera í tólf manna hópnum sem fer út til Litháen, en það kemur bara í ljós. Fyrir mér var það stórt skref að komast í landsliðshópinn í fyrsta sinn.“
Á síðasta áratug hefur íslenska landsliðið tekið stór skref og Ísland farið að gera sig gildandi í Evrópukeppni. Veigar Páll telur það ekki tilviljun.
Að hans mati hafi landsliðið fengið meiri áherslu og trúin aukist. Hann bendir líka á að deildin heima hafi stækkað, orðið sterkari og kröfurnar hækkað fyrir vikið. „Deildin hérna heima er orðin gríðarlega stór og bara betri,“ segir hann og nefnir að leikmenn úr sterkum deildum erlendis hafi komið til landsins og lyft heildargæðunum.
Það hafi áhrif á íslenska leikmenn. Meiri keppni, meiri kröfur, meiri hraði. Hann bendir á að þetta sjáist líka á því að margir í lykilhlutverkum landsliðsins spili heima og svo séu aðrir sem séu á hæsta stigi í Evrópu. Hann nefnir leikmenn eins og Elvar, Martin, Tryggva og Jón Axel sem dæmi um þá sem hafi sýnt hversu langt sé hægt að ná.

Útlendingar í deildinni, kostir og gallar
Umræðan um fjölda útlendinga í efstu deild hefur oft snúist um hvort yngri íslenskir leikmenn fái næg tækifæri. „Það eru einmitt kostir og gallar í þessu,“ segir hann. Jú, stundum geti þetta tekið mínútur frá íslenskum leikmönnum en á móti komi að þeir sem fá að vera inni í hóp með sterkum útlendingum geti tekið stór skref og náð meiri framförum.
Hann rifjar upp tíma þegar hann var um tvítugt í Njarðvíkurliðinu og fékk að vera með leikmönnum sem höfðu reynslu úr spænsku deildinni. „Þarna var ég bara að soga í mig allar upplýsingar sem ég gat fengið frá þeim og það gerði mig að betri leikmanni,“ segir hann.
Hvernig lærir maður af reyndari og betri leikmönnum?
„Ég myndi segja mest ákvarðanataka. Þú þarft ekki að vera fljótasti maðurinn á vellinum ef þú tekur réttar ákvarðanir.“ Hann nefnir góðar sendingar, staðsetningar í vörn og hvernig reyndari leikmenn lesi leikinn.
Svo segir hann að spyrja skipti máli. „Þótt það séu heimskulegar spurningar, þá viltu fá að vita allt sem aðrir vita,“ segir hann.

Elvar fyrirmyndin
Í hópnum eru fleiri með Njarðvíkingatengsl en þar eru Kristinn Pálsson, uppalinn Njarðvíkingur og Elvar Friðriksson, annar tveggja bestu leikmanna landsliðsins að undanförnu. Veigar Páll segir að það séu ekki bara hæfileikar Elvars sem skeri sig úr heldur vinnan.
„Hann leggur alveg gríðarlega á sig,“ segir hann. Þegar Elvar kemur heim á sumrin hafi þeir æft saman og Veigar Páll segir sig hafa reynt að taka eftir öllu. Hann nefnir mataræði, reglusemi og líkamlegt ástand.
„Ég hef bara reynt að læra eins mikið af honum og ég get. Hann borðar rétt og æfir vel og er alltaf í góðu formi,“ segir hann og bætir við að það sé margt sem hægt sé að taka til fyrirmyndar.
Skotin, lyftingarnar og reglurnar
En hvernig æfir Veigar Páll?
Veigar Páll segir að hann skipti rútínunni upp. Hann reyni að borða rétt þegar æfingar og leikir eru í gangi, þó að hann sé ekki af þeim sem eru stífir á hverjum einasta degi. Í styrktarþjálfun segist hann lyfta fyrir æfingar þrisvar í viku.
Sérstaklega nefnir hann þó eitt sem hann hefur haldið sig við, eftir ábendingu frá Loga Gunnarssyni aðstoðarþjálfara. „Hann sagði við mig að hitta úr að minnsta kosti 50 skotum eftir hverja einustu æfingu og ég hef bara haldið mig við það,“ segir hann. Að hans mati hafi þetta skilað sér fljótt. „Þetta hefur bara hjálpað mér gríðarlega.“
Ef hann nái ekki kvótanum einn dag, þá bæti hann upp daginn eftir, eða taki þetta fyrr um daginn. Hann segir að einfaldar reglur sem maður fylgir ítrekað geti skipt miklu þegar tímabilið er langt.

Styrkleikar og það sem þarf að bæta
Þegar hann er spurður um helstu styrkleika segir hann að hann sé „fínasta skytta“ og hafi bætt það undanfarið. Hann lýsir sér líka sem ákveðnum leikmanni á körfuna, góðum í að „dræva“ og fínum í sendingum út úr því. Hann vill meina að hann passi vel í liðsbundinn körfubolta.
Hvað vill hann svo bæta?
Hann segir að hann vilji verða stöðugri, sérstaklega í að klára í kringum hringinn, og ná meiri ró og öryggi í sóknarleiknum. Markmiðið sé að taka næsta skref, þannig að góðu kaflarnir verði fleiri.
Bandaríkin, veggurinn og ákvörðunin um að koma heim
Veigar Páll fór í háskólabolta í Bandaríkjunum sem marga íslenska leikmenn dreymir um fyrir þremur árum. Hann segir fyrstu mánuðina hafa verið fína, hann hafi spilað um 15 mínútur að jafnaði fyrsta árið en annað árið hafi reynst erfiðara.
„Ég lenti bara svolítið á vegg, var ekki alveg klár í annað árið,“ segir hann. Þegar hann lítur til baka segist hann kannski hafa átt að skoða fleiri möguleika, þó að körfuboltinn sjálfur hafi verið góður. Það sem hafi valdið vonbrigðum hafi meira verið umgjörðin, allt sem er í kring.
Niðurstaðan varð sú að koma heim. „Koma heim og finna sig svolítið aftur, sem var bara rétt ákvörðun á þeim tíma,“ segir hann.
Atvinnumannsdraumurinn og skrefin í Evrópu
Veigar Páll segir atvinnumannsdrauminn enn lifa og að hann hafi verið að ræða við umboðsmenn. Það sé samt ekkert komið á blað, enda sé hann á samningi hjá Njarðvík næsta tímabil.
„Það eru draumar, ég get sagt þér það, en það er ekkert staðfest,“ segir hann.
Hann nefnir að ef tækifæri komi þá séu ákveðin lönd líkleg sem fyrsta skref. „Það er Svíþjóð, Portúgal og Holland,“ segir hann og útskýrir að hann vilji fara þetta skynsamlega. „Maður vill ekki taka of stórt stökk og vera ekki að spila. Taka þetta í þrepum og sjá hvert það tekur mann.“

Njarðvík, fjórir leikir eftir og markmiðið skýrt
Það er ekki annað hægt en að ræða slæma stöðu Njarðvíkinga í Bestu deild karla. Veigar Páll segir liðið hafa verið óheppið fyrir áramót og að nokkrir leikir hafi getað farið öðruvísi.
Nú séu fjórir leikir eftir og fókusinn sé einfaldur: Að vinna næstu leiki og komast í úrslitakeppnina. „Markmiðið er að komast í úrslitakeppnina. Það yrðu mikil vonbrigði ef það tekst ekki.“
Sumarplan, smá hvíld og svo beint í veikleikana
Þegar tímabilinu lýkur á vorin segist hann taka stutta pásu, viku eða tvær, þar sem hann slakar á og sleppir körfunni. Eftir það vilji hann byrja æfingar aftur.
Hann segir að sumaræfingar skipti miklu, sérstaklega þegar maður getur valið áherslurnar sjálfur. Hann nefnir að í fyrra hafi hann getað unnið markvisst í því sem hann vildi og tekið stór skref. Lyftingarnar séu áfram stór hluti af því og auka styrk og snerpu.





