Tap hjá Keflavík og Njarðvík
Keflavík tapaði fyrir botnliði ÍA og Njarðvík gekk illa á móti nýkrýndum bikarmeisturum KR í 18. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Grindavík vann ÍR (sjá aðra umfjöllun).
UMFN-KR 92-105
Njarðvíkingar lentu í miklum mótivindi í Icemar höllinni og voru sextán stigum undir eftir fyrsta leikhluta á móti sjóðheitum KR ingum. Þeir náðu aldrei að brúa það bil almennilega og urðu að sætta sig við tap gegn flottu KR liði.
Stigahæstir hjá UMFN voru Dwayne Lautier-Ogunleye 31/4 fráköst, Sven Smajlagic 23/12 fráköst, Luwane Pipkins 19 og Dominykas Milka 10/8 fráköst/8 stoðsendingar.
Njarðvík er í 9. sæti og berst við Álftanes og ÍR um 8. sætið til að komast í úrslitakeppnina.
ÍA-Keflavík 97-96
Keflvíkingar töpuðu fyrir botnliði ÍA sem gafst ekki upp þrátt fyrir að vera tíu stigum undir í hálfleik. Þeir voru betri í lokin og unnu sinn fyrsta leik frá því í nóvember. Bandaríski leikmaðurinn Darryl Morsell sem var hjá Keflavík fram að áramótum sýndi sínum gömlu félögum enga miskunn og átti stærstan þátt í sigri ÍR með því að skora 36 stig og taka 9 fráköst. Mirza Bulic átti möguleika í síðustu sókn Keflavíkur að tryggja þeim sigur en skot hans geigaði. Hann skoraði 24 stig og tók 11 fráköst, Hilmar Pétursson var með 23 stig og 10 stoðsendingar.
Keflavík er í 6. sæti, en liðið saknaði 2-3 sterkra lykilmanna eins og Remy Martin sem hefur lítið leikið. UMFN og UMFG eru líka með menn á meiðslabekknum.
En nú tekur við landsleikjavika og svo eru bara þrjár umferðir þar til úrslitakeppnin hefst.






