IceMar styður knattspyrnudeild Njarðvíkur til tveggja ára
Knattspyrnudeild Njarðvíkur og sjávarútvegsfyrirtækið IceMar hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning. Greint var frá samkomulaginu í tilkynningu frá deildinni.
IceMar var stofnað árið 2003 af Njarðvíkingnum Gunnari Örlygssyni, sem er í dag forstjóri og meðeigandi fyrirtækisins. IceMar hefur verið dyggur stuðningsaðili íþróttastarfs í Reykjanesbæ um árabil og má þar m.a. nefna að fyrirtækið hefur verið með nafnaréttinn að IceMar-höllinni, heimavelli körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.
Í tilkynningunni segir að samstarfið komi sér vel á komandi tveimur árum, þar sem karlalið Njarðvíkur hyggst gera aðra atlögu að sæti í Bestu deild karla. Þá er einnig fram undan tímamótatímabil hjá sameiginlegu kvennaliði Njarðvíkur og Grindavíkur, sem samkvæmt tilkynningu mun leika í Bestu deildinni í fyrsta sinn.





