Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Ný borhola landfræðilega vel varin gagnvart náttúruvá
Frá borun austan Grindavíkur. Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Þriðjudagur 17. febrúar 2026 kl. 16:43

Ný borhola landfræðilega vel varin gagnvart náttúruvá

Borun er hafin eftir vatni í Vatnsheiði, rétt austan Grindavíkur, sem liður í leit að nýju varavatnsbóli fyrir bæinn á vegum Vatnsveitu Grindavíkur. Á svæðinu eru eldri ferskvatnsholur sem voru nýttar af varnarliðinu á sínum tíma, en þær holur eru nú ónýtar. Fyrri rannsóknir hafa þó bent til þess að þar geti verið að finna neysluhæft vatn. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.

Nýja borholan er staðsett í um 80 metra hæð yfir sjávarmáli og er því talin landfræðilega vel varin gagnvart náttúruvá, svo sem hraunrennsli, auk þess sem hún er fjarri sprungusveimum.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Verkefnið er tvískipt. Í fyrri áfanga verður borað eftir vatni og gerðar álags- og gæðaprófanir. Reynist vatnið nægilegt að magni og standist kröfur um neysluhæfi tekur við síðari áfanginn, sem felur í sér að tengja vatnsbólið inn á veitukerfi Vatnsveitu Grindavíkur.

Við hönnun nýrrar vatnsmóttökustöðvar við Grindavíkurveg, Klifhólabrunns, var þegar gert ráð fyrir mögulegri tengingu frá varavatnsbóli á þessu svæði. Sá áfangi er umfangsmeiri og mun meðal annars taka mið af legu nýs Suðurstrandarvegar, sem áætlað er að liggi sunnan varnargarðanna við Grindavík.