Njarðvíkurkonur einar á toppnum
Njarðvíkurkonur tylltu sér einar á toppinn í Bónus deild kvenna í körfubolta þegar þær lögðu Hauka í gærkvöldi með níu stiga mun, 87-96 á útivelli. Eftir sigurinn er Njarðvík á toppnum með 26 stig en þrjú lið koma skammt á eftir, með aðeins tveimur stigum minna.
Það leit ekki alveg út fyrir Njarðvíkursigur í byrjun leiks því heimakonur voru betri og leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-16. Njarðvíkingar svöruðu hins vegar strax fyrir sig í næsta og þar næsta leikhluta og náðu níu stiga forskoti fyrir síðasta leikhlutann sem endaði jafn og sigurinn fór því til Njarðvíkur.
Brittany Dinkins fór mikinn hjá Njarðvíkingum, skoraði 36 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez var með 15/10 fráköst/8 stoðsendingar og Hulda María Agnarsdóttir 11.
Það er Suðurnesjaslagur í kvöld því Grindavík heimsækir bikarmeistara Keflavíkur í Blue höllinni í kvöld en liðin áttust við nýlega í úrslitum VÍS bikarkeppninnar sem Keflavík vann.
Njarðvík: Brittany Dinkins 36/10 fráköst/8 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 15/10 fráköst/8 stoðsendingar, Hulda María Agnarsdóttir 11, Krista Gló Magnúsdóttir 10/8 fráköst, Helena Rafnsdóttir 10/5 fráköst, Sofia Roma 6/6 fráköst, Sara Björk Logadóttir 6, Inga Lea Ingadóttir 2, Alexandra Eva Sverrisdóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0.






