Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Grindavík komið með aðra höndina á deildarameistaratitilinn í Bónusdeild karla
Góð mæting var í HS-orku höll Grindvíkinga í kvöld
Fimmtudagur 19. febrúar 2026 kl. 21:58

Grindavík komið með aðra höndina á deildarameistaratitilinn í Bónusdeild karla

Grindavík tók á móti ÍR í 18. umferð Bónusdeildar karla í kvöld og hélt sínu striki, unnu sigur í hörku körfuboltalið þar sem tvö góð lið mættust, lokatölur 100-95 eftir að staðan í hálfleik var 61-50. Eftir þennan sigur þarf heldur betur allt að fara í skrúfuna hjá Grindvíkingum ef deildarmeistaratitillinn og þ.a.l. heimaleikjaréttur í gegnum alla úrslitakeppnina, verður ekki þeirra. Fjórir leikir eru eftir og eru Grindvíkingar með þremur færri tapleiki en næstu lið.

61 stig fengin á sig í fyrri hálfleik segir í raun alla söguna, það er erfitt að mæta á útivöll á móti langefsta liði deildarinnar, fá á sig 61 stig í fyrri hálfleik er ekki uppskriftin að sigri. ÍR-ingar sýndu samt mikinn karakter og komu alltaf til baka þegar Grindavík var komið með muninn upp fyrir tíu stigin. Í stöðunni 84-83 fengu ÍR-ingar nokkur tækifæri til að komast yfir og hver veit hvernig leikurinn hefði þróast þá en ekki er gáfulegt að vera mikið að spá í þeim frænkum, Ef og Hefði.

Það vantaði talsvert í lið Grindvíkinga í kvöld en þeir Daniel Mortensen, Kristófer Breki Gylfason og Arnór Tristan Helgason, voru ekki með. Ólafi fyrirliða var tjaslað saman en hefði líklega annars verið í borgaralegum klæðnaði. Það kom ekki að sök því Grindavík fékk frábært framlag af bekknum og er Nökkva Más Nökkvasonar sérstaklega getið í því sambandi. Aðalbreytingin á liði Grindvíkinga er samt nýleg Kanaskipti en eins og Jóhann Þór, þjálfari UMFG orðaði það, gæðin hreinlega leka af Jeremy Pargo! Hann skilaði 21 stigum og 9 stoðsendingum í kvöld og lítur hann virkilega vel út. Ekki þarf að hafa mörg orð um Deandre Kane, það blasa gæðin sömuleiðis við en í kvöld skilaði Kane 28 stigum og 6 fráköstum. Síðast en ekki síst er Jordan Semple gífurlegt stökk upp á við í fjórða útlendingaígildi Grindvíkinga. Hann er frábær að finna opin svæði og fáir eru betri að rúlla að körfunni. Hann og Pargo eiga að geta myndað banvænt tvíeyki í hinu rómaða „pick & roll.“ Semple skilaði 21 stigi og 10 fráköstum.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Nökkvi Már Nökkvason átti frábæra innkomu hjá Grindavík, setur hér einn af þremur þristum sínum niður.

Deandre Kane setur einn af sínum fjórum þristum niður.

Jeremy Pargo hefur komið eins og stormsveipur inn í lið Grindvíkinga.

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari UMFG: Nökkvi Már Nökkvason, UMFG: