Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Bikarmeistararnir töpuðu fyrir botnliðinu
Miðvikudagur 25. febrúar 2026 kl. 10:36

Bikarmeistararnir töpuðu fyrir botnliðinu

Keflvíkurkonur voru langt frá sínu besta þegar þær töpuðu fyrir Ármanni, neðsta liði Bónus deildar kvenna í körfubolta í Laugardalshöllinni í gær. Lokatölur 84-75.

Ármenningar voru betri og ákveðnari allan tímann, hittu betur og gerðu flesta hluti betur en nýkrýndir bikarmeistarar sem hafa ekki náð sér á strik að undanförnu að undanskildum bikarvikunni.

Keishana Washington skoraði 24 stig og tók 11 fráköst og hefur verið jafnbesti leikmaður liðsins síðustu vikurnar. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 12 stig en lykilmaður liðsins, Sara Rún Hinriksdóttir átti afleitan dag og skoraði aðeins 3 stig og munar um minna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Það er hörku nágrannarimma í Grindavík í kvöld þegar heimakonur fá Njarðvík í heimsókn.

Keflavík: Keishana Washington 24/11 fráköst/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 12/7 fráköst, Angelina Turmel 11/7 fráköst, Agnes María Svansdóttir 8, Anna Ingunn Svansdóttir 7, Sofie Tryggedsson Preetzmann 6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4/4 fráköst/3 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 3, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Oddný Hulda Einarsdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0.
Dómarar: Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Sigurbaldur Frímannsson, Ágúst Jensson
Áhorfendur: 55