Jökull Blængsson íþróttamaður ársins hjá Þrótti Vogum
Jökull Blængsson var á dögunum valinn íþróttamaður ársins 2025 hjá Þrótti Vogum á íþróttahátíð félagsins sem fór fram síðastliðinn laugardag. Þar var mikil stemning og góð þátttaka en veittar voru fjölmargar viðurkenningar fyrir störf og árangur innan félagsins.
Jökull, sem er 28 ára, lék sitt annað tímabil með meistaraflokki Þróttar í 2. deild í knattspyrnu síðasta sumar og átti stóran þátt í glæsilegum árangri liðsins. Fyrir tímabilið var liðinu spáð áttunda sæti, en Þróttur endaði í þriðja sæti – hársbreidd frá sæti í 1. deild. Árgangurinn byggðist ekki síst á sterkum varnarleik, en Þróttur fékk á sig fæst mörk allra liða í deildinni og var Jökull þar algjör lykilmaður.
Frammistaða hans fór ekki fram hjá neinum og var hann valinn í lið ársins í 2. deild af fyrirliðum og þjálfurum annarra liða.
Jökull hefur einnig vakið athygli fyrir fyrirmyndarframlag utan vallar. Hann átti meðal annars þátt í þeirri eftirminnilegu hugmynd að leikmenn Þróttar leiddu eldri borgara inn á völlinn fyrir leik gegn Víði Garði – uppákoma sem vakti mikla landsathygli og undirstrikaði mikilvægi þess að allir geti átt hlutverk og verið virkir þátttakendur í samfélaginu.
Það er félaginu einnig mikilvægur styrkur að Jökull skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Þrótt síðasta haust.
Bronsmerki og fleiri viðurkenningar
Á íþróttahátíðinni voru einnig veitt bronsmerki Þróttar til fimm aðila. Guðmundur Kristinn Sveinsson, Ingvar Leifsson og Davíð Harðarson hlutu bronsmerki fyrir uppbyggingu mannvirkja við íþróttasvæðið, en í ár eru tíu ár liðin frá því að stúkan við knattspyrnuvöllinn var reist. Petra Ruth Rúnarsdóttir fékk bronsmerki fyrir framlag sitt til Landsmóts UMFÍ 50+ í Vogum 2024 og Gunnar Júlíus Helgason fyrir mikilvægt framlag til félagsins, meðal annars í stjórnunarstörfum.
Þá hlaut Brennólið Þróttar sérstaka viðurkenningu fyrir þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+ í Fjallabyggð 2025 í opnum flokki, og sex hlauparar fengu þakkir fyrir söfnun í Minningarsjóð Hróars í Reykjavíkurmaraþoni síðasta sumar, alls 236 þúsund krónur.
Sjálfboðaliði ársins var valin Guðrún Ósk Barðadóttir fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins. Auk þess hlutu Eysteinn Sindri Elvarsson og Hreinn Ingi Örnólfsson starfsmerki Þróttar fyrir framlag sitt til félagsins.
Íþróttahátíðin sýndi enn og aftur kraftinn og samheldnina sem einkennir Þrótt í Vogum, þar sem öflugt fólk leggur sitt af mörkum innan vallar sem utan.
Hér má sjá umfjöllun og fleiri myndir.





