Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur velur á lista fyrir komandi kosningar
Fimmtudagur 5. mars 2026 kl. 06:34

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur velur á lista fyrir komandi kosningar

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur boðar til félagsfundar sunnudaginn 8. mars næstkomandi þar sem fram fer skoðanakönnun vegna vals á lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Fundurinn verður haldinn í Golfskálanum að Húsatóftum í Grindavík og hefst hann klukkan 16:00, en skráning þátttakenda byrjar hálftíma fyrr.

Níu einstaklingar hafa gefið kost á sér til þátttöku í fimm efstu sætum listans. Þau Eva Lind Matthíasdóttir, Guðbjörg Eyjólfsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson stefna öll á efstu sætin. Guðbjörg og Hjálmar hafa gefið kost á sér í fyrsta til annað sæti en Eva Lind í fyrsta til fimmta sæti. Ólöf Rún Óladóttir sækist eftir öðru sætinu og Ómar Davíð Ólafsson því þriðja. Guðmundur Pálsson miðar við annað til fjórða sæti og Friðrik Sigurðsson gefur kost á sér í þriðja til fimmta sæti. Þá bjóða þau Dagmar Valsdóttir og Jón Breki Einarsson sig fram í fjórða til fimmta sæti.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þátttökurétt í skoðanakönnuninni hafa allir félagar í Sjálfstæðisfélagi Grindavíkur sem eru 15 ára og eldri. Skilyrði er að viðkomandi hafi haft lögheimili í Grindavík þann 9. nóvember 2023 eða séu með lögheimili í bænum í dag. Hægt er að ganga frá skráningu í flokkinn á vefnum fyrir upphaf fundarins. Þeir sem eru með lögheimili í Grindavík færast sjálfkrafa í félagið við skráningu en fólk með lögheimili utan bæjarins þarf að velja Grindavík sérstaklega sem sitt félag til að öðlast atkvæðisrétt á fundinum.