Njarðvík á toppnum
Njarðvík er á toppi Bónus deildar kvenna í körfubolta en liðið sigraði granna sína í Grindavík á þeirra heimavelli í gær. Lokatölur ellefu stiga sigur, 66-77.
Það var aðeins í byrjun sem heimakonur voru betri en þær náðu sex stiga forskoti í fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar tók smám saman völdin í leiknum og að lokum innbyrtu þær nokkuð öruggan sigur.
Brittany Dinkins var að venju atkvæðamest hjá Njarðvík en hún skoraði 24 stig og tók hvorki fleiri né færri en 14 fráköst.
Hjá Grindavík var Farhiya Abdi stigahæst með 21 stig.
Njarðvíkingar eru með 28 stig en KR, Valur og Haukar koma í sætum 2-.4. Grindavík er í 5. sæti og Keflavík í 6. sæti.
Grindavík-Njarðvík 66-77 (26-20, 9-19, 12-14, 19-24).
Grindavík: Farhiya Abdi 21/8 fráköst, Abby Claire Beeman 14/4 fráköst/5 stoðsendingar, Þórey Tea Þorleifsdóttir 11, Isabella Ósk Sigurðardóttir 9/12 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 5/12 fráköst, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 5, Ólöf María Bergvinsdóttir 1, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.
Njarðvík: Brittany Dinkins 24/14 fráköst/6 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 14/14 fráköst/7 stoðsendingar, Hulda María Agnarsdóttir 10, Inga Lea Ingadóttir 10, Sofia Roma 5/11 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 5, Helena Rafnsdóttir 4, Alexandra Eva Sverrisdóttir 3, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 2, Aníta Rut Helgadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Sara Björk Logadóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jakob Árni Ísleifsson, Daníel Steingrímsson
Áhorfendur: 67





