Íþróttir

Góður sigur Grindavíkur í Vesturbænum
Ísabella lék vel hjá Grindavík í sigri á KR. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 2. mars 2026 kl. 11:22

Góður sigur Grindavíkur í Vesturbænum

Grindavíkurkonur lögðu KR á útivelli í A-riðli Bónus deildar kvenna í körfubolta í gær. Lokatölur urðu 87-98. Deildinni hefur verið skipt um og nú keppa liðin í efri hluta og neðri hluta áður en úrslitakeppnin  hefst.

KR-ingar byrjuðu betur í Vesturbænum og leiddu með þremur stigum  eftir fyrsta leikhluta. Grindavík jafnaði fyrir hálflleik og leiddi með stig 42-43.

Áfram með jafnt með liðunum en í fjórða leikhluta tóku þær grindvísku öll völd á vellinum og innbyrtu elleftu stig sigur, 87-98.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Abby C. Beeman fór mikinn í leiknum, skoraði 26 stig, tók 14 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Ísabella Ósk Sigurðardóttir var líka mjög öflug, setti 21 stig og tók 8 fráköst.

Stórleikur Jiselle Valentine hjá KR, 34 stig, dugði þeim ekki.

Staðan í efri hlutanum er gríðarlega jöfn, Njarðvík er efst en næstu fjögur lið koma rétt á eftir.

Næsta umferð verður 4. mars en þá fá Keflvíkingar Tindastól í heimsókn og Njarðvík fær Hauka. Grindavík fer á Hlíðarenda.