Karlakórinn
Karlakórinn

Aðsent

Yfirlýsing frá forstjóra HSS
Fimmtudagur 22. júní 2023 kl. 11:02

Yfirlýsing frá forstjóra HSS

Allt frá því að ég tók við sem forstjóri HSS, hef ég beitt mér fyrir því að bæta þjónustu við íbúa Suðurnesja og það hefur m.a. falist í því að berjast gegn því ranglæti sem íbúarnir hafa þurft að þola af hálfu stjórnvalda, sérstaklega hvað varðar það að fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á svæðinu hafa ekki tekið mið af fjölgun íbúa og þróunar rekstrarkostnaðar. Á HSS hafa stjórnendur verið í uppbyggingarstarfi sem hefur leitt til þess að traust til stofnunarinnar hefur aukist, eins og sjá má hér.

Á síðasta ári var ljóst að í óefni stefndi ef fjárveitingarnar yrðu ekki lagfærðar. Af því tilefni fengum við á HSS hið virta ráðgjafafyrirtæki Deloitte til að greina hvernig fjárframlög á hvern íbúa Suðurnesja hefðu þróast milli áranna 2008-22 með tilliti til þróun rekstrarkostnaðar. Þá var niðurstaðan samdráttur um 22% á hvern íbúa fyrir stofnunina í heild, þar af 45% á sjúkrasviði. Í ljósi þess að fólksfjölgun er einna mest á landinu á okkar þjónustusvæði vöruðum við heilbrigðisráðherra við því að ef ekki yrði brugðist við þessum vexti þá væri samfélaginu á Suðurnesjum stofnað í hættu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þrátt fyrir þessi varnaðarorð, fyrir ári síðan, brást heilbrigðisráðuneytið ekki við með fullnægjandi hætti. Því fór ég þess á leit við Deloitte að uppfæra skýrsluna frá því í fyrra með tölum þessa árs. Uppfærð skýrsla Deloitte staðfestir að fjárframlög á hvern íbúa hafa dregist enn meira saman eða um 27% fyrir stofnunina í heild og þar af 50% á sjúkrasviði. Staðan hefur því hríðversnað milli ára, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af minni hálfu til að fá heilbrigðisráðuneytið og ráðherra til að leiðrétta það stóra gat sem aðgerðarleysi stjórnvalda um árabil hefur leitt af sér, gat sem núverandi ráðherra ber ekki einn ábyrgð á að myndaðist.

Ég hef sýnt staðfestu gagnvart ráðherra og ráðuneytinu sem hefur fram til þessa aðeins skilað aukafjárveitingum sem ekki hafa dugað til enda er grunnvandi stofnunarinnar enn óleystur. Eftir birtingu uppfærðu skýrslu Deloitte í síðustu viku, fékk ég formlegt bréf frá ráðuneytinu um að miðað við umfang starfsemi slysa- og bráðamóttöku HSS væri sú deild vanfjármögnuð og ráðuneytið hygðist beita sér fyrir að fjárveitingar til hennar yrðu hækkaðar um 300 m.kr. í fjárlögum næsta árs. Með þeirri ákvörðun ráðuneytisins felst ákveðin viðurkenning á að minn málflutningur sé samkvæmur sannleikanum. Hún dugar þó ekki til að leysa vandann nema að hluta.

Verulegur ágreiningur hefur verið milli mín og núverandi heilbrigðisráðherra varðandi skyldur stjórnvalda um fjármögnun á stjórnarskrárvarinni þjónustu við íbúa Suðurnesja. Ég hef því tekið ákvörðun um að óska eftir áliti Umboðsmanns Alþingis á þeim ágreiningsmálum enda hefur verulega skort á efnislegum svörum af hálfu ráðuneytisins við erindum mínum og niðurstöðum skýrslna Deloitte. Þá hef ég einnig ákveðið að óska eftir að Umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra, með þátttöku ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins, gagnvart mér þegar ég sinnti starfsskyldum mínum sem felast í að upplýsa um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýna stjórnvöld. Sú framganga er að mínu mati hvorki í samræmi við góða stjórnsýslu né siðareglur ráðherra þar sem ég hef verið beittur óeðlilegum þrýstingi og orðið fyrir óviðunandi framkomu.

Með vinsemd og virðingu,

Markús Ingólfur Eiríksson
forstjóri HSS