ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Aðsent

 Vilhjálmur Árnason býður sig fram til oddvita
Laugardagur 3. janúar 2026 kl. 10:00

Vilhjálmur Árnason býður sig fram til oddvita

„Eftir fjölda áskorana og mikla umhugsun með mínum nánustu hef ég ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í komandi prófkjöri, sem fram fer 31. janúar,“ segir Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins og þingmaður í Suðurkjördæmi í tilkynningu sem hann sendi frá sér í morgun.

Þar segir Vilhjálmur jafnframt:
„Fyrir tveimur árum breyttist líf okkar fjölskyldunnar skyndilega þegar við þurftum að yfirgefa heimilið okkar í Grindavík. Við Silla settumst þá að í Reykjanesbæ – enda var bærinn fyrir löngu orðinn okkar annað heimili.

Silla starfar á Keflavíkurflugvelli og sjálfur hef ég starfað bæði í lögreglunni á Suðurnesjum og verið þingmaður Suðurnesjamanna í 12 ár. Þetta er samfélag sem við þekkjum og samfélag sem þekkir okkur. Á þessum erfiðu tímum tóku bæjarbúar utan um fjölskyldu mína. Það var ekki sjálfsagt, en það var mannlegt og það gleymist aldrei.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Við hjónin sjáum Reykjanesbæ sem stað sem færir börnunum okkar þau tækifæri sem þau eiga skilið. Hér alast þau upp umvafin duglegu fólki, skapandi hugviti og öflugu íþrótta- og menningarstarfi – með alþjóðaflugvöllinn í bakgarðinum, hafið og orkuna allt í kring. Tækifærin hér eru endalaus, en tækifæri þarf að grípa.

Í dag standa fjölskyldur frammi fyrir raunverulegum áskorunum. Bið eftir leikskólaplássum er of löng, íþróttagjöld eru orðin þung byrði fyrir mörg heimili og fasteignaskattar hafa hækkað verulega. Uppbygging íbúða þarf að vera fjölbreyttari og taka mið af ólíkum þörfum fólks sem vill byggja sér framtíð hér.

Stefna meirihlutans, um að yfir 95% allra nýbygginga eigi að vera fjölbýlishús, er ekki framtíðarsýn að mínu skapi og ekki til þess fallin að byggja upp sterkt og fjölskylduvænt samfélag.

Reykjanesbær er ljósabær og ég trúi því af öllu hjarta að hér sé hægt að byggja upp samfélag þar sem allir fá að láta ljós sitt skína. Megináhersla næstu bæjarstjórnar verður að vera sú að tryggja að Reykjanesbær verði besti staður landsins fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. 

Við þurfum ábyrgari rekstur sveitarfélagsins til að geta lækkað skatta á heimilin. Við þurfum skýra framtíðarsýn í skipulagsmálum sem virðir drauma fólks um eigið heimili og fjölbreytt búsetuform. Og við þurfum að setja börnin raunverulega í fyrsta sæti – með aðgengi að leikskólum, sterkum íþróttafélögum og bestu grunnskólum landsins.

Reykjanesbær er stórveldi og ég óska eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu svo við getum saman tryggt að allir fái að láta ljós sitt skína.

Nú brettum við upp ermar og hefjumst handa!“