Aðsent

Suðurnesjabær – Heilsueflandi samfélag!
Sunnudagur 12. febrúar 2023 kl. 07:14

Suðurnesjabær – Heilsueflandi samfélag!

Suðurnesjabær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi árið 2020 og er meginmarkmið þess verkefnis að styðja við samfélög í að vinna markvisst að því að skapa umhverfi og aðstæður sem hvetja til heilbrigðra lifnaðarhátta, betri heilsu og vellíðanar íbúa.

En hvað er að vera heilsueflandi samfélag?

Öll vitum við að heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, hvort sem við erum laus við sjúkdóma eða ekki. Lýðheilsa felur í sér að bæta heilsu, líðan og lífsgæði okkar allra. Í Heilsueflandi samfélagi þarf að vera virk þátttaka allra í samfélaginu, öll þurfum við að leggjast á eitt til efla okkar eigin heilsu og að okkur líði vel í því samfélagi sem við búum í. Í Suðurnesja-bæ búum við yfir góðum kostum í heilsurækt og að sjálfsögðu má alltaf gera betur. Við búum yfir einstakri náttúrufegurð og umhverfi sem er frábært að nýta í að bæta andlega og líkamlega vellíðan, við erum lánsöm að eiga tvö íþróttamannvirki, tvær sundlaugar, erum með tvö fótboltafélög, handboltafélag og körfuboltadeild. Einnig er mjög öflugt heilsueflandi starf heldri borgara. Öllu þessu má þakka þeim frábæru aðilum sem hafa virkilegan áhuga á því að sinna því að vera hluti af Heilsueflandi samfélagi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hvað þurfum við að gera betur?

Til að efla samfélagið enn meira þurfum við að vera dugleg að nýta öll þau verkfæri sem Suðurnesjabær hefur að geyma og að aðilar stígi fram og komi með fleiri hugmyndir og tillögur að frekari íþróttaiðkun og tómstundum, meiri fjölbreytni svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Sveitarfélagið er stuðningsaðilinn, klappstýran sem á að hvetja og styðja við þá einstaklinga og hópa sem vilja bæta og gera betur fyrir samfélagið í heild. Samfélag virkar ekki nema allir sem þar búa taki virkan þátt og hjálpist að við að stuðla að Heilsueflandi samfélagi.

Það er mín von og trú að með samstillti átaki og samvinnu allra íbúa og bæjaryfirvalda þá eigum við eftir að bera af í framtíðinni.

Verum stolt af því að búa í Suðurnesjabæ og verum stolt af því að búa í Heilsueflandi samfélagi.

Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir,
bæjarfulltrúi Suðurnesjabæjar.