Karlakórinn
Karlakórinn

Aðsent

Staða kynningar- og þjónustufulltrúa við Keflavíkurkirkju
Mánudagur 1. maí 2023 kl. 13:22

Staða kynningar- og þjónustufulltrúa við Keflavíkurkirkju

Starfssvið og verkefni:

- Umsjón með kynningarmálum Keflavíkurkirkju m.a. á samfélagsmiðlum, heimasíðu og  öðrum fjölmðlum. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

- Utanumhald og þátttaka í athöfnum og viðburðum í kirkjunni.  

- Umsjón með starfi sjálfboðaliða og hópa í Keflavíkurkirkju.

-  Önnur tilfallandi verkefni.

Laus er til umsóknar 75% staða kynningar- og þjónustufulltrúa við Keflavíkurkirkju,
Kjalarnesprófastsdæmi.  Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Þekking og hæfni:

- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.

- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.

- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt skipulagshæfni.

- Áhugi og reynsla af kirkjustarfi er æskileg.

- Sveigjanleiki til að taka að sér tilfallandi verkefni innan starfssviðsins.

Umsækjendur skulu skila inn starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Umsókn ber að fylgja staðfesting á  menntun. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupsstofu  er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. lög og reglur Þjóðkirkjunnar. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Slóð á eyðublaðið er hér: 

Frekari upplýsingar um starfið veitir séra Erla Guðmundsdóttir, [email protected], sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli eða Kjartan Ingvarsson [email protected]  sími 420-4300, rekstrarstjóri Keflavíkurkirkju 

Umsóknarfrestur er til og með föstudaginn 9. júní 2023.
Sækja ber um starfið með því að senda tilskilin gögn á tölvupóstfangið [email protected].