Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Aðsent

Snjallsímalausir grunnskólar
Föstudagur 2. júní 2023 kl. 13:59

Snjallsímalausir grunnskólar

Á fræðsluráðsfundi í Reykjanesbæ þann 25. maí síðastliðinn mætti formaður nemendaráðs Myllubakkaskóla, Daníel Örn Gunnarsson, og ræddi áhyggjur sínar um snjallsímanotkun nemenda á skólatíma. Daníel var þarna mættur sem fulltrúi nemenda og ég vil nýta tækifærið hér og hrósa honum fyrir vel undirbúið erindi og frábæra framkomu. Ég fæ hlýtt í hjartað að sjá svona ungt og öflugt fólk láta málin sig varða og hér er ekki um neitt smáræðis málefni að ræða. Unga fólkið okkar áttar sig nefnilega alveg á stöðunni og eru mörg farin að hafa áhyggjur af snallsímanotkun. Erindi Daníels vakti mig til umhugsunar og hefur setið í mér síðan. 

Það eru svo margar spurningar sem vakna hjá mér af hverju þetta er leyft. Sjálf á ég ekki börn á grunnskólaaldri en ég hefði talið það sjálfsagt að snjallsímar væru almennt ekki leyfðir á skólatíma. Daníel nefnir að ungmenni eyða að meðaltali átta klukkustundum og 40 mínútum á dag í símanum þrátt fyrir að vera í skóla á daginn. Rannsóknir sýna fram á að snjallsímanotkun ungmenna veldur miklum kvíða og félagslegri einangrun. Snjallsímanotkun getur haft slæm áhrif á námsárangur og slæm áhrif á svefn. Í raun eru allir rannsakendur á sama máli að snjallsímanotkun barna og ungmenna sé áhyggjumál og þetta er vandamál sem við verðum að takast á við.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

En ef allir rannsakendur eru á sama máli að of mikil snjallsímanotkun sé skaðleg, ættum við þá ekki að leggja mikið á okkur til að takmarka notkun þeirra?

Daníel nefnir í sinni kynningu að þessi hugmynd hafi mætt mótlæti frá foreldrum sem byggja á þeim rökum að síminn sé mikilvægt samskiptatæki milli foreldra og barna. Því er auðvelt að sýna skilning en hér hljótum við að geta fundið útfærslu sem hentar öllum.

Á persónulegu nótunum er ég lítið fyrir boð og bönn. Unglings-Gígja hefði eflaust ekki verið mjög spennt fyrir ströngu símabanni. Því legg ég til að skólastjórnendur í Reykjanesbæ myndi sér stefnu um símalausa grunnskóla og setji sér það markmið að takmarka símanotkun nemenda á skólatíma.

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir,
uppeldis- og menntunarfræðingur, fulltrúi í fræðsluráði Reykjanesbæjar.