Aðsent

Ljóðasamkeppni í tilefni af Ljósanótt
Laugardagur 19. ágúst 2023 kl. 08:23

Ljóðasamkeppni í tilefni af Ljósanótt

Menningarfélagið Bryggjuskáldin efnir til ljóðasamkeppni á Suðurnesjum í tilefni af Ljósanótt

Reglur keppninnar eru einfaldar: Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt.

Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í dómnefnd sitja skáldin: Anton Helgi Jónsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Guðmundur Magnússon, Gunnhildur Þórðardóttir og þýðandinn Helga Soffía Einarsdóttir.

Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.

Skilafrestur rennur út mánudaginn 28. ágúst.

Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: [email protected] ef það hentar betur.


Tilkynnt verður um úrslit föstudaginn 1. september 2023.
Þá munu vinningshafar lesa upp ljóðin sín og taka á móti viðurkenningu.

Sá viðburður verður auglýstur þegar nær dregur.