Bilakjarninn
Bilakjarninn

Aðsent

Hér er ég
Mánudagur 30. júní 2025 kl. 11:52

Hér er ég

Það er ekki oft sem maður fær fyrirsögn í fjölmiðlum og enn sjaldgæfara að kallað sé eftir manni í fyrirsögn greinar. Bæjarfulltrúar Umbótar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sjá ástæðu til þess að inna mig eftir staðsetningu minni nú þegar sveitarfélagið stendur frammi fyrir afleiðingum þess að Vinnumálastofnun sagði upp samningi sínum við sveitarfélagið Reykjanesbæ, Hafnarfjörð og Reykjavík.

Vegna meintrar fjarveru minnar í því máli er mér ljúft að bregðast við ákveðnum atriðum sem fram koma í þessu ákalli bæjarfulltrúa Umbótar.

1. Ríkisstjórnin sagði ekki upp neinum samningi heldur var það stofnun á vegum ríkisins sem það gerði eftir að hafa metið það svo að ekki væri þörf á að kaupa þá þjónustu lengur. Vinnumálastofnun ber að sjálfsögðu að fara vel með fjármuni og hagræða eins og kostur er rétt eins og stofnunum sveitarfélagsins er uppálagt að gera.

Annað væri óábyrgt.

Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því að samningnum hafi verið sagt upp með þeim fyrirvara sem samningurinn kveður á um.
Ég hef alla vega ekki heyrt að um samningsbrot hafi verið að ræða, hvorki frá Reykjanesbæ né hinum sveitarfélögunum sem um ræðir. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

2. Það myndi teljast sérkennilegt ef ég sem kjörinn þingmaður færi að skipta mér af rekstri stofnana ríkisins. Ég hef engar heimildir til þess. Þetta vita bæjarfulltrúarnir mæta vel enda hafa þeir sjálfir ekki neinar heimildir til þess að grípa inn í starfsemi stofnana sveitarfélagsins. 
Við getum auðvitað haft skoðanir á ýmsu en það væri ansi hreint sérstakt ef ég ætlaði að koma í veg fyrir að stofnun í eigu ríkisins sæi möguleika til þess að hagræða og gerði það að löglegan hátt

3. Mér þykja bæjarfulltrúarnir taka fullt stórt upp í sig þegar þeir segja „að samfélagið sem þú ert sprottinn úr stendur frammi fyrir djúpstæðum fjárhagsvanda eftir að ríkisvaldið rifti einhliða samningi við bæinn?“
Síðan nefna þeir töluna 15-20 milljónir, talan sem bundin er í gerðum húsaleigusamningum. 

Ég hef ekki hugmynd um hvernig Reykjanesbær muni bregðast við þessari stöðu en ég hlýt að spyrja mig  hvort 15-20 milljónir séu að skapa slíkan djúpstæðan fjárhagsvanda fyrir sveitarfélagið eins og bæjarfulltrúarnir halda fram.
Skv. ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2024 voru tekjur bæjarsjóðs 27.8 milljarðar og samstæða sveitarfélagsins skilaði rúmum 40 milljörðum í tekjur.

Sveitarfélag af þessari stærðargráðu væri í verulega slæmri stöðu ef 15-20 milljónir sköpuðu slíkan vanda.

Guðbrandur Einarsson
þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi