Alzheimersamtökin með fræðslu á Nesvöllum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum (FEBS) hefur fengið Alzheimersamtökin til að vera með fræðslu næstkomandi fimmtudag, þann 30. október, kl. 14 á Nesvöllum. Þar verður starf samtakanna kynnt og fjallað um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur.
Fræðslan er opin öllum áhugasömum, kaffiveitingar í boði FEBS og aðgangur ókeypis.
Meiri þekking og minni fordómar
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Umræða um heilabilun er einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu. Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið.
Heilabilun og samskipti
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi þeirra sjá um fræðsluna. Þær kynna starfsemi samtakanna og fjalla um heilabilun og leiðir til að bæta samskipti við einstaklinga sem glíma við slíkar raskanir.
Öll velkomin – aðgangur ókeypis.

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. FEBS og Alzheimersamtökin hvetja alla áhugasama til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga með heilabilun, aðstandendur, fagfólk eða aðra áhugasama.








