Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Glæsileg bókaverslun opnar í Krossmóa
Úr nýju versluninni í Krossmóa í Reykjanesbæ.
Marta Eiríksdóttir
Marta Eiríksdóttir skrifar
þriðjudaginn 25. júní 2019 kl. 08:29

Glæsileg bókaverslun opnar í Krossmóa

Nú hefur Penninn Eymundsson flutt sig um set yfir í nýja og glæsilega verslun í Krossmóa í Reykjanesbæ, húsnæði sem er mjög bjart og rúmgott.

Bókabúðin flytur á nýjan stað

Það var árið 2006 sem Penninn hf., sem í dag heitir Penninn Eymundsson, keypti Bókabúð Keflavíkur, á Sólvallagötu, af fjölskyldu Marteins Jóns Árnasonar. Gamla bókabúðin var rekin frá árinu 1965 af Marteini og fjölskyldu hans og var fyrst staðsett við Hafnargötu.
Húsnæðið við Sólvallagötu var löngu úr sér vaxið fyrir allt það vöruúrval sem nútímabókabúðir bjóða upp á eða svo segir Aníta Gunnlaugsdóttir, verslunarstjóri, þegar Víkurfréttir kíktu í heimsókn.

„Þetta er geggjuð tilfinning, æðislega flott verslun og bara svo gaman að koma hingað í Krossmóann með allar vörurnar sem við bjóðum upp á. Í gamla húsnæðinu, vorum við svo út úr þrátt fyrir að vera nálægt miðbænum. Nú erum við komin í kjarnann þar sem fólkið er. Ég hefði aldrei trúað hvað það er mikið af fólki sem kemur hingað í Krossmóann, það er stanslaus straumur allan daginn,“ segir Aníta hæstánægð með nýja verslun á nýjum stað sem opnaði síðasta laugardag en formleg opnun fer fram þann 20. júní.

Þurftu að loka í þrjá daga vegna flutninga

„Bókaverslanir og þjónusta þeirra skiptir máli, það sáum við glöggt þegar við þurftum að loka gömlu búðinni í þrjá daga, á meðan við vorum að stilla upp vörum hér á nýja staðnum. Þá kom fólk til okkar, bankaði upp á og spurði hvort við gætum ekki bjargað þeim um hitt og þetta og það gerðum við þrátt fyrir að tölvukerfið okkar lá niðri. Við erum eina bókaverslun svæðisins, eina bókaverslunin á öllum Suðurnesjum og fáum fólk úr Grindavík, Vogum, Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ sem verslar við okkur. Hér er jöfn verslun allt árið því við bjóðum ekki einungis upp á bækur og tímarit heldur einnig gjafavöru og vörur til ferðalaga, ferðatöskur og fleira. Árstíðabundin verslun er þegar skólarnir byrja og þegar jólin koma og bókaflóðið en margir kaupa og lesa bækur allan ársins hring. Þá er gott að vera félagi í Vildarklúbbnum okkar en félagsmenn fá alltaf 5% afslátt og sértilboð á vildarkjörum þegar þau bjóðast. Það geta allir farið inn á penninn.is á vefnum og skráð sig í Vildarklúbbinn,“ segir Aníta og horfir yfir verslunina sem fær hana til að brosa og segja:

„Í þessu húsnæði eru allar vörur að njóta sín miklu betur. Allt er sýnilegt á sömu hæð, þetta er einn stór geimur. Það háði okkur í gamla húsnæðinu að vera með vörur á tveimur hæðum, þetta er mun einfaldara og miklu betra. Hér sjá viðskiptavinir okkar allt úrvalið í einni svipan. Hér eru einnig stórir gluggar sem opna fyrir birtuna að utan.“

Aníta segir opnunartímann breytast, að þjónustan verði aukin í nýrri verslun og fleiri góðar breytingar verða.

„Við verðum með mun lengri opnunartíma. Mánudaga til miðvikudaga opnum við klukkan 9:00 á morgnana og höfum opið til klukkan 18:00. Fimmtudaga og föstudaga verðum við með opið frá 09:00 til 19:00 og laugardaga frá klukkan 11:00 til 18:00 og sunnudaga frá klukkan 13:00 til 17:00. Þetta er mun meiri þjónusta en við höfum áður boðið upp á og það gefur viðskiptavinum okkar möguleika á að kaupa það sem vantar um helgar til dæmis en áður var lokað hjá okkur um helgar. Við erum með virka fyrirtækjaþjónustu alla virka daga en um helgar getum við aðstoðað ef þeim vantar til dæmis pappír í posann eða ef fólki vantar bækur til gjafa, tækifæriskort og fleira. Jú, jú tækifæriskort eru líka til annars staðar en verslun okkar býður miklu meira úrval. Hjá okkur færðu einnig þjónustu og þekkingu starfsfólks þegar þú vilt kaupa til dæmis bók en þá getum við ráðlagt fólki því við þekkjum bækurnar,“ segir Aníta og heldur áfram: „Við tökum einnig virkari þátt núna í öllu viðburðarhaldi, tilboðum og uppákomum sem fara fram í Krossmóa. Nú verðum við beinir þátttakendur því hérna erum við í alfaraleið og tökum þátt í viðburðum eins og kósýkvöldi, haustdögum og fleiru skemmtilegu sem Krossmói skipuleggur fyrir viðskiptavini. Við verðum einnig með notalegt kaffihorn hjá okkur þar sem fólk getur látið fara vel um sig, fengið sér kaffi og kíkt í blöðin. Þar seljum við alvöru kaffi og einnig kalda drykki.“ Að lokum vill Aníta benda á allskonar opnunartilboð þessa daga og hvetur fólk til að líta við og gera góð kaup í Penninn Eymundsson.


Aníta Gunnlaugsdóttir, verslunarstjóri Penninn Eymundsson.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024