Sigurfari með 122 tonn af steinbít í maí
Maímánuður svo til kominn á enda og þó svo að flestir línubátanna séu farnir þá er búið að vera mikið um að vera, og þá aðallega útaf strandveiðibátunum sem eru hérna.
Dragnótabátar með góðan afla
Dragnótabátarnir hafa veitt mjög vel og allir að landa í Sandgerði. Þar er t.d. Stapafell SH sem er kominn með 75 tonn í sjö róðrum og mest 14,2 tonn. Margrét GK 27 með 37 tonn í sjö róðrum og þar af eru 16 tonn lönduð í Grindavík.
Aðalbjörg RE með 127 tonn í tíu róðrum og mest rúm 15 tonn.
Maggý VE með 67 tonn í fimm róðrum og mest 18,8 tonn. Báturinn fór síðan til Vestmannaeyja og landaði þar um 29 tonnum í þremur róðrum.
Benni Sæm GK með 93 tonn í sex róðrum, Siggi Bjarna GK með 66 tonn í sex róðrum og síðan er það Sigurfari GK, hann hefur allan maímánuð verið að veiðum austur undir Skaftárósum og verið að eltast við steinbít. Hefur veiðin hjá bátnum gengið mjög vel en báturinn landaði tvisvar í Þorlákshöfn, alls 115 tonnum og þar af 62 tonnum í einni löndun. Tvær landanir voru í Sandgerði, alls 117 tonn og var því Sigurfari GK með um 230 tonn í aðeins fjórum löndunum í maí. Uppistaðan í þessum afla hjá Sigurfara GK var steinbítur eða 122 tonn.
Togarar að fiska vel
Nokkrar landanir hafa verið hjá togurunum og aflinn var nú nokkuð góður. Pálína Þórunn GK er komin með 210 tonn í þremur löndunum en hún hefur verið að veiðum á svæðinu í kringum Eldey. Áskell ÞH kom með 49 tonn til Grindavíkur og þangað kom líka Vörður ÞH með 58 tonn.
Hulda Björnsdóttir GK hefur landað 498 tonnum í þremur löndunum og þar af fullfermi, 183,1 tonn í einni löndun sem fékkst eftir fimm daga á veiðum. Það gerir um 37 tonn á dag. Uppistaðan í þessum stóra túr var þorskur, 154 tonn.
Sóley Sigurjóns á rækjuveiðum
Sóley Sigurjóns GK hóf veiðar núna um miðjan maí, togarinn landaði síðast um miðjan mars, var síðan siglt til Akureyrar þar sem togarinn var tekinn í slipp og unnið í ýmsum lagfæringum og skipið síðan allt málað. Togarinn fór beint á rækjuveiðar og landaði fyrst á Siglufirði 32,4 tonnum og var rækja af því 21 tonn. Skipið kom síðan til Hafnarfjarðar með 26 tonn og af því var rækja 18 tonn.
Slippvinna í Njarðvík
Óli á Stað GK og Hópsnes GK eru báðir komnir í slipp í Njarðvík. Óli á Stað GK verður þar eitthvað fram á sumarið því ásamt því að fara í málun og hefðbundið viðhald, á að skipta um ljósavél í bátnum.
Nýtt líf fyrir Dóra GK
Og fyrst að minnst er á slippinn í Njarðvík þá hefur staðið þar bátur sem heitir Dóri GK, sem Nesfiskur átti. Þessi bátur var búinn að vera með nafnið Dóri GK í um tíu ár en var samt ekki búinn að vera gerður út síðan í apríl árið 2022.
Núna er búið að selja bátinn til Breiðdalsvíkur og mun hann þar fá nafnið Hafnarey SU 706. Eigandi er Gullrún ehf. á Breiðdalsvík. Það fyrirtæki hefur nú keypt nokkra báta héðan frá Suðurnesjum, þ.á.m. dragnótabátinn Njál RE sem átti sér langa sögu í Sandgerði. Fyrirtækið keypti Njál RE árið 2021 og gaf honum nafnið Silfurborg SU. Þá keypti Gullrún líka bátinn Guðrúnu GK, sem hét þar á undan Pálína Ágústsdóttir GK og aftur var keyptur bátur frá Sandgerði.
Nafnið Hafnarey SU er nú þekkt á Breiðdalsvík því að þar var gerður út togari sem hét Hafnarey SU og þessi togari átti síðan eftir að eiga sögu á Suðurnesjunum, nánar tiltekið í Vogum, því að árið 1995 var Hafnarey SU seld til Valdimars ehf í Vogum og fékk þar nafnið Þuríður Halldórsdóttir GK. Þegar að Valdimar ehf sameinaðist Þorbirni hf. í Grindavík fór togarinn yfir í þeirra eigu og var togarinn með þessu nafni alveg til ársins 2007. Núna árið 2025 er togarinn ennþá gerður út og heitir Jón á Hofi SI og er gerður út á rækju frá Siglufirði.