Bygg
Bygg

Pistlar

Nýtt upphaf eftir hrygningarstopp
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 25. apríl 2025 kl. 09:00

Nýtt upphaf eftir hrygningarstopp

Nú má segja að lífið sé komið á fullt aftur eftir nokkurt hlé. Síðan síðasti pistill var skrifaður hefur hrygningarstoppið verið í gildi, og því lítið um að vera fyrir minni báta. Þó voru togarar og nokkrir stærri línubátar við veiðar, en þeir þurftu allir að vera utan við 25 mílna mörkin.

Bátarnir komust aftur á sjóinn á annan í páskum, og það við dásamlegt veður, sem þeir hafa svo sannarlega notið síðan.

Þótt hrygningarstoppið hafi haft sín áhrif, er alls ekki svo að ekkert hafi verið að gerast. Nú styttist hratt í upphaf strandveiðitímabilsins 2025, sem hefst í byrjun maí. Hátt í 600 leyfi eru þegar komin hjá Fiskistofu og margir bátanna sem hyggjast róa eru einmitt héðan af Suðurnesjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Lagði ekki árar í bát

Einn þeirra sem ætlar sér á strandveiðar er Einar Magnússon, sem margir þekkja úr útgerð hér á svæðinu. Einar hefur lengi verið kenndur við báta sem báru nafnið Ósk KE 5 og nú hefur hann endurvakið nafnið á ný.

Hann keypti á dögunum bát sem áður hét Alli GK 47, 6,1 tonna Sómabátur sem var staðsettur í Sandgerði. Sá bátur hefur nú fengið nafnið Ósk KE 5.

Útgerðarsaga Einars er löng og merkileg, en upphaf hennar var þó sorgleg. Í janúar árið 1988 var Einar um borð í Bergþóri KE 5, ásamt föður sínum, Magnúsi Þórarinssyni skipstjóra, sem þá var þekktur aflakóngur í Sandgerði og oft aflahæstur yfir landið. Bergþór KE hvolfdi við veiðar út af Sandgerði og sökk. Tveir menn fórust: Elvar Þór Jónsson og Magnús skipstjóri. Þremur mönnum var bjargað, þar á meðal Einari. Það var Árni Vikarsson, skipstjóri á Akurey KE 121, sem bjargaði þeim.

Þetta var mikið áfall fyrir ungan sjómann, en Einar lét ekki deigan síga. Hann hóf útgerð á eigin vegum og leigði fyrst bátinn Dröfn RE, gamlan eikarbát sem áður hafði verið notaður við rannsóknir fyrir Hafrannsóknastofnun. Hann kláraði vertíðina 1988 á Dröfn RE.

Stuttu síðar keypti Einar bát með skráningarnúmerið 363 og nefndi hann Ósk KE 5. Sá bátur er nú í Njarðvík og heitir Maron GK. Einari gekk afar vel á þessum báti og mikill metnaður og keppni einkenndi vertíðirnar, sérstaklega milli hans og Tomma á Hafnarbergi RE. Báðir reru frá Sandgerði yfir vertíðina.

Ósk KE lifir áfram í nýjum búningi

Í gegnum tíðina hafa nokkrir bátar borið nafnið Ósk KE. Einn þeirra var svokallaður „Kínabátur“, áður gamla Rúna RE, sem fór meðal annars á dragnót. Báturinn sem nú heitir Tryggvi Eðvarð SH bar einnig nafnið Ósk KE um tíma, og það sama má segja um Geirfugl GK og Maggý VE sem var Ósk KE frá 2007 til 2011.

Síðasta verkefni Einars í útgerð áður en hann hætti um 2015 var að eiga hlut í stórum togbát sem hét Magnús Geir KE 5. Sá bátur hafði verið keyptur frá Grindavík, þar sem hann hét áður Oddgeir EA.

Nú er Ósk KE því kominn á flot á ný og hefur Einar þegar haldið til veiða. Í mars réri hann ellefu sinnum og landaði alls um tólf tonnum – mest 1,8 tonnum í einum róðri. Báturinn er á færum og landaði í Keflavík.