Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Pistlar

Jóhanna Gísladóttir GK
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 22. október 2021 kl. 07:27

Jóhanna Gísladóttir GK

Ekki hafa nú veðurguðirnir verið hliðhollir útgerð á Suðurnesjum núna frá því að síðasti pistill var skrifaður.

Reyndar þá fóru strákarnir sem voru að róa á Gulltoppi GK frá Sandgerði, þeir Axel og Ragnar, norður til Siglufjarðar og sóttu Hópsnes GK og sigldu honum til Sandgerðis. Voru þeir um 26 klukkutíma á siglingu og lentu í leiðindaveðri þegar þeir sigldu yfir Faxaflóann, sigldi togarinn Sóley Sigurjóns GK með þeim og skýldi fyrir versta veðrinu. Þeir komust þó klakklaust yfir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það er mikið búið að vera að gerast hjá Vísi ehf. í Grindavík undafarin ár. Miklar breytingar hafa orðið á bátaflota þeirra. Nýsmíði Páll Jónsson GK og tveir eldri bátar teknir í miklar endurbætur og breytt í línubáta, Fjölnir GK og Sighvatur GK. Eftir stendur svo flaggskip þeirra, Jóhanna Gísladóttir GK, sem á sér ansi langa og farsæla sögu í útgerð hérna við land og að mestu þá sem loðnuskip. Kannski nánar um það síðar.

Stærsta breytingin sem Vísir ehf. gerði tengdist einmitt Jóhönnu Gísladóttir ÍS, því í staðinn fyrir að breyta bátnum þá keypti fyrirtækið togarann Berg VE og hann heitir í dag Jóhanna Gísladóttir GK. Togarinn er smíðaður í Skagen í Danmörku árið 1988 en var innfluttur árið 2005. Hann er 35,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd og um borð er 1.300 hestafla MAN vél.

Gamla Jóhanna Gísladóttir GK er smíðuð á Akranesi árið 1969, er 57 metrar á lengd og átta metrar á breidd og um borð er 1.020 hk vél af Wichmann gerð.

Hvaðan kemur þetta nafn Jóhanna Gísladóttir?

Jú, það er nefnilega þannig að núverandi eigendur Vísis eru meðal annars þeir bræður Páll Jóhann og Pétur Hafsteins Pálssynir.  Afi þeirra og amma voru Páll Jónsson, fæddur 12. desember árið 1904 og lést 25. nóvember 1943, og Jóhanna Daðey Gísladóttir, fædd 17. janúar árið 1908 og dó 2. júlí árið 1981. Páll Jónsson átti tvo báta, Fjölnir ÍS 7 sem hann eignaðist árið 1933 og Hilmir ÍS sem var nýsmíði og var smíðaður árið 1943 á Akureyri. Báturinn hafði farið nokkrar ferðir milli Snæfellsnes og Reykjavíkur með vikurfarm fyrir Víkurfjelagið og var báturinn á leið í sína sjöundu ferð yfir til Arnarstapa þegar það fórst. Um borð í bátnum voru sjö skipverjar og fjórir farþegar, af þessum farþegum var sjö ára strákur. Allir um borð fórust. Leitað var að bátnum en ekkert fannst af honum og voru uppi getgátur um að báturinn hefði farist af hernaðar völdum.

Eftir þetta hörmulega sjóslys gerði Jóhanna Gísladóttir út hinn bátinn, Fjölni ÍS, en sá bátur var smíðaður út stáli árið 1922 í Englandi og var með 200 hestafla gufuvél. Sá bátur fórst árið 1945 eftir árekstur við breskt skip, Larids Growe, undan strönd Írlands og með honum fórust fimm menn en öðrum fimm var bjargað.

Þau Páll og Jóhanna eignuðust fimm börn og eitt af þeim Páll Hreinn Pálsson sem fæddist 3. júní árið 1932 og lést 16. febrúar árið 2015. Hann útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum árið 1953 og sama ár kaupir hann bátinn Eldey EA 110 og skírir hann Fjölni ÍS 177. Þann bát gerði Páll út til ársins 1972 þegar að sá bátur var talinn ónýtur.  

Árið 1965 kaupir Páll Hreinn, ásamt Kristmundi Finnbogasyni og Ásgeiri Lúðvíkssyni, fyrirtækið Sævík í Keflavík sem gerði út bátinn Vísi KE 70 og upp frá því var útgerðarfélagið Vísir hf. stofnað. Þess má geta að mörg þessara nafna hafa komið fram í bátum á vegum fyrirtækisins. Núna, árið 2021, er t.d. gerður út um tuttugu tonna línubátur sem heitir Daðey GK og annar svipað stór bátur er gerður út sem heitir Sævík GK.

Vísir hefur ekki gert út marga togara í gegnum tíðina og því verður áhugavert að sjá hvernig nýju Jóhönnu Gísladóttir GK muni ganga þegar togarinn hefur veiðar.