Grímsi er ennþá að eltast við ufsann
Nóvember er kominn í gang og eins og við var að búast eru nú ekki margir bátar á sjó.
Það sem af er nóvember eru aðeins 157 bátar og togarar á veiðum og af þeim eru aðeins 22 bátar og togarar sem hafa landað á Suðurnesjunum.
Það er aðeins farið að fjölga netabátunum því að fjórir bátar á vegum Hólmgríms eru komnir af stað. Elley GK með 6,5 tonn í 4 róðrum. Addi Afi GK 4,3 tonn í 2, Sunna Líf GK 3,9 tonn í 3 og Emma Rós KE 2 tonn í 2.
Grímsi GK er ennþá að eltast við ufsann og er kominn á veiðar djúpt úti frá Sandgerði við Jökultunguna, Var fyrr í nóvember við veiðar við suðurströndina og landaði þá í Þorlákshöfn 39 tonnum í tveimur róðrum.
Dragnótaveiðar í Faxaflóa gengu vel í október og var heildarafli bátanna sem voru á veiðum þar um eitt þúsund tonn, og þar af voru þrír bátar með yfir 200 tonna afla. Stapafell SH er komið með 53 tonn í 4 róðrum, landað í Njarðvík. Aðalbjörg RE með 54 tonn í 5, landað í Njarðvík og Reykjavík. Siggi Bjarna GK 35 tonn í 3, og Benni Sæm GK 25 tonn í 3, báðir í Sandgerði. Sigurfari GK kom með 17,6 tonn í land í einni löndun, en hann var á veiðum í kringum Eldey.
Núna er Sigurfari GK kominn á smá flakk, fór austur að Þjórsárósum og síðan áleiðis austur fyrir Vík í Mýrdal.
Tveir línubátar eru á veiðum héðan frá Suðurnesjum, Dúddi Gísla GK er í Grindavík og hefur landað þar 10 tonnum í 2 róðrum og í Sandgerði er Margrét GK sem er með 11 tonn í 2 róðrum.
Þegar komið er svona langt inn í endann á árinu þá fækkar handfærabátunum mjög mikið og núna það sem af er nóvember á öllu landinu hafa aðeins 11 bátar farið á sjóinn með handfæri og af þessum bátum eru sjö bátar frá Suðurnesjum, þrír frá Grindavík og fjórir frá Sandgerði.
Þessir bátar eru að eltast við ufsann, en hann hefur verið tregur, það sem af er nóvember kom Agla ÍS með 1,2 tonn og Ólafur GK með 230 kíló báðir í einni löndun til Grindavíkur.
|Og í Sandgerði er Dímon GK með um 860 kíló í tveimur róðrum. Hawkerinn GK með um 840 kíló í tveimur róðrum og Guðrún GK með um 940 kíló í tveimur róðrum.
Verð á ufsa á fiskmörkuðum er mjög gott, eða í kringum 450 krónur kílóið, svo að þó að aflinn sé ekki meiri þá er verðmætið töluvert, t.d. hjá Guðrúnu GK rúmar 400 þúsund krónur.
Reyndar núna í Jökuldýpinu sem er norðvestur út frá Sandgerði. Þar eru núna nokkur stór uppsjávarskip, eins og til dæmis Gullberg VE, Margrét EA, Beitir NK, Hákon EA og Svanur RE, að veiða síld, og þar sem þau eru á þekktri veiðislóð sem togarar og línubátar hafa líka verið á, þá fylgir því að ansi mikið af aukaafla kemur í flottrollið hjá þessum stóru skipum,
Öll þessi skip sigla framhjá Reykjanesinu austur, til hafna þar, en þeir sem gera sér ferð út á Reykjanesið geta stundum séð þessi skip sigla þarna framhjá þegar skipin sigla í gegnum Röstina.





