Pistlar

Aflafréttir: Sandgerðingar ekki óvanir að sprengja hval
Fóru Sigurvonarmenn á Hannesi Hafstein og tóku Steinunni BA í tog.
Föstudagur 19. mars 2021 kl. 07:47

Aflafréttir: Sandgerðingar ekki óvanir að sprengja hval

Það heldur áfram að skjálfa og titra Reykjanesskaginn eins og enginn sé morgundagurinn.  Þessir skjálftar hafa svo sem enginn áhrif á sjávarútveginn og fiskveiðar. Þær halda sínum gangi áfram þrátt fyrir öll þessi ósköp – og svo bætir náttúran við sig og sendir eitt stykki stóran og mikinn hval upp við fjöruna við golfvöllinn í Sandgerði. Æði margir sem lögðu leið sína í blíðunni núna síðustu helgi til að virða fyrir sér þennan stóra hval. 

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði fór síðan á mánudaginn og dró hvalinn út og svo til alveg út að Eldey til að sökkva honum – en dýrið sökk ekki og verður örugglega sprengt í loft upp. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sandgerðingar eru nú svo sem ekkert óvanir því að sprengja hval í loft upp. Það gerðist fyrir rúmum tuttugu árum síðan þegar hval rak að landi á svipuðum slóðum og núverandi hvalur kom.

Sá hvalur var dreginn langt út á haf en sökk ekki og þremur dögum síðar rak hann á land við Garðskaga og var þá orðinn dragúldinn. 

Nú voru góð ráð dýr og var enn og aftur kölluð til Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði til að draga hvalshræið út – og núna var maður með frá ÍAV sem var þrælvanur að sprengja ... og hvalurinn var fylltur af dínamíti og síðan sprengdur.

Búið var að draga hvalshræið nokkuð langt út á haf, beint út frá Sandgerði, og var mikið sjónarspil þegar hvalurinn sprakk í loft upp. Á Hvalnum sjálfum og ofan við hann var mikið um fugla og þegar hvalurinn sprakk í loft upp drápust nokkrir fuglar sem bæði voru á hvalnum og líka þeir sem voru að fljúga þegar hvalsbitar flugu í loftið og lentu á þeim. 

Faðir minn, Reynir Sveinsson, var þá með Sigurvonarmönnum og var að ljósmynda atburðarrásina og í bátnum var líka Viðar Oddgeirsson, heitinn, sem þá var að taka upp fyrir RÚV.

Þar sem enginn á bátnum vildi fara í sjónvarpsviðtal var tekið viðtal við Reyni þar sem pabbi lýsti atburðarrásinni nokkuð vel.

Eitthvað fóru samt þessi fugladráp fyrir brjóstið á fuglafriðunarmönnum og síminn stoppaði ekki hjá pabba þar sem honum var næstum því hótað öllu illu, fólk var reitt og kenndi honum um allt saman. Þessi æsingur varði í nokkrar vikur þangað til að þetta mál féll í gleymsku.

Nú verður bara spurning hvort það verði jafn mikið fjör núna, þegar þessi hvalur verður sprengdur í loft upp, og var þegar Reynir og Viðar voru þarna út á sjó að mynda þetta fyrir mörgum árum síðan.

En varðandi Sigurvon í Sandgerði þá var þetta hvalsverkefni ekki það eina sem þeir tóku sér fyrir hendur því að þeir fóru útkall á Hannesi Hafstein en hann var líka notaður í hvalinn. Voru þeir þá kallaðir út á sunnudaginn þegar smá vélarbilun varð í Steinunni BA, sem er fimmtán tonna Cleopatra-bátur og var við veiðar um tuttugu mílur út frá Sandgerði. Fóru Sigurvonarmenn á Hannesi Hafstein og tóku Steinunni BA í tog. Gekk vel hjá þeim en í heild þá tók ferðin um sex klukkustundir. Biluninn í Steinunni BA var nú ekki stórvægileg því báturinn var kominn á sjó aftur seinna um kvöldið.

Gísli Reynisson
aflafrettir.is