Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Pistlar

Á botninum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. maí 2021 kl. 14:30

Á botninum

Það er alltaf meira líf í samfélaginu þegar það eru alþingiskosningar framundan og sama má segja um prófkjör. Um næstu helgi verða sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi með prófkjör. Frambjóðendur hafa verið nokkuð duglegir að undanförnu að láta vita af sér og verða það eflaust til loka vikunnar fyrir prófkjörsdag.

En hvað eru frambjóðendur að segja þessa dagana. Hér má sjá eina setningu úr greinum nokkurra frambjóðenda sem skrifa grein í blað vikunnar:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Öflugt atvinnulíf og fjölbreytt vel launuð störf eru forsenda fyrir góðri afkomu heimilanna.“

„Auðvitað á fólk að geta gengið að fyrsta flokks þjónustu í heilbrigðismálum á sínu svæði, og þá ber að líta til þess að fleiri geti tekið þátt í að veita þá þjónustu, þótt kostnaður sé greiddur af opinberum aðilum.“

„Ástandið í heilbrigðismálum á Suðurnesjum er kapítuli út af fyrir sig og óboðlegt með öllu.“

„Við flytjum of stóran hluta þess, sem við neytum, inn með tilheyrandi tjóni fyrir umhverfið. Við ættum að vera að útflutningsþjóð en erum innflutningsþjóð.“

Og hver hefur ekki skrifað svona:

„Ég er í framboði og tel mig hafa sýnt það í verki að mér er annt um svæðið og tel mig geta nýtt krafta mína á Alþingi Íslendinga, með ykkar umboði.“

Þetta eru allt fín mál sem fólkið talar fyrir og við trúum því auðvitað þegar einhverjir þessara frambjóðenda komast á Alþingi að þá munu þeir gera sitt besta. Sumir jafnvel enn betur. Því miður er það þó staðreynd að það vantar verulega upp á í mörgum þáttum í okkar kjördæmi í opinberri þjónustu. Það hefur oft verið rætt en lítið gengið að fá því breytt að framlög til margra þjónustuþátta á Suðurnesjum eru lægri en annars staðar. Við getum nefnt mennta- og skólamál, löggæslu og samgöngur sem dæmi. Þrátt fyrir að gott fólk frá Suðurnesjum og úr Suðurkjördæmi hafi reynt sitt besta er það til dæmis ísköld staðreynd að hér er heilbrigðisþjónusta mun lakari en í öðrum kjördæmum. Nær allir frambjóðendur í prófkjöri og frambjóðendur í öðrum flokkum eru sammála því og einnig þeir sem hafa verið áður frá okkar svæði á Alþingi. Samt er bara ein heilsugæslustöð á Suðurnesjum þar sem búa rétt tæp 30 þúsund manns á meðan það ættu að vera að minnsta kosti þrjár. Nú erum við samt komin að þolmörkum og það er algerlega óásættanlegt að Suðurnesjamenn þurfi að leita að heilugæsluþjónustu til höfuðborgarsvæðisins en það gera þrjú, fjögur þúsund manns.

Hvað þarf eiginlega að gera til að ná betri árangri? Víkurfréttir hafa ekki skipt sér af flokkapólitík en það er þó ekki hægt að sleppa tækifærinu að hvetja Suðurnesjamenn sem taka þátt í vali á fólki til áhrifa á hinu háa Alþingi að standa saman um að ná forystu í pólitísku flokkunum. Þannig eru möguleikarnir svæðisins betri. Hjá þremur pólitískum flokkum sem hafa nú þegar valið sína frambjóðendur er fólk búsett á Suðurnesjum í oddvitasætum. Hvernig sem sætin skipast á Alþingi næsta haust er ljóst að Suðurnesjamenn þurfa ráðherra og fólk í framlínuna sem getur haft áhrif á að laga núverandi stöðu. Framlínan þarf að skora mörk og við þurfum sterkari sóknarleik. Árangur af því gæti komið okkur af botninum í Alþingisdeildinni.