KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Pistlar

„Skóstærðin“ skiptir máli
Föstudagur 27. mars 2026 kl. 09:42

„Skóstærðin“ skiptir máli

Ætli maður að ná árangri skiptir öllu máli að vera í vel pússuðum skóm af réttu merki. Þá getur ekkert klikkað. Við höfum á undanförnum vikum fengið að fylgjast með skókaupum Bandaríkjaforseta sem akkúrat er þessarar skoðunar og hann velur skóstærðirnar sjálfur. Þeir verða jú allir að vera eins. Hann hefur ákveðið skóblæti. Allir verða að vera í Florsheim-skóm, sem vinur hans selur og hann kaupir fyrir alla sem nálægt honum koma. Stærðin er alltaf sú sama og menn verða bara að vera í þeim þá hvort heldur þeir passa eða ekki.

Þetta skóblæti forsetans kom mér í hug þegar fréttir bárust af niðurrifi Kísilverksmiðunar í Helguvík og baráttunnar gegn því að hún risi. Þá brast á svona blæti í Keflavík, allir urðu að vera í sömu skóm, og róa í sömu átt. Þeim sem fannst skórinn ekki passa voru efasemdarmenn og afturhaldseggir af verstu gerð, og greinilega ekki í Florsheim-skóm.

Það var svolítið eins og einhver bölvaður vírus hefði stungið sér niður í bænum. Bent var á lykt sem bærist frá iðjuverinu en stór hluti nefstærstu mannanna í Florsheim-skónum fundu ekki lyktina. Covid var ekki einu sinni komið til sögunnar. Svo misstu þeir sjónina þegar nákvæmar tölvumyndir birtust af framkvæmdinni, sáu bara ekkert. Málinu var reddað með nýjum teikningum sem sýndu miklu lægri skorsteina og enga lykt.  Skepnan reis úr jörðu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Öll saga kísilversins og kröfunnar um að allir gengju í eins skóm og sama númeri er sannkölluð sorgarsaga. Saga sem menn ættu að læra af. Fyrir stjórnmálamennina er lærdómurinn helst sá að lesa skýrslurnar sem að baki liggja og afla sér upplýsinga væri eitthvað ekki alveg ljóst. Það gerði enginn heldur bara samþykktu það sem á borð var lagt. Eins og strengjabrúður.

Afstöðuleysi stjórnmálamannanna varð svo til þess að hagsmunir almennings voru settir til hliðar og áfram haldið að þjóna hagsmunum stóriðjueigandans. Lífeyrissjóðir landsmanna töpuðu milljörðum.

Við vitum öll að vandaðir og vel hirtir skór skipta máli, og skóstærðin öllu. Hvort heldur maður er í Florsheim-skóm eða bara venjulegum æfingaskóm. Við eigum ekki að láta pólitískan réttrúnað ráða því í hvaða skóm við göngum eða hvaða númer við notum. Saga kísilversins í Helguvík segir okkur að við eigum að láta heyra í okkur þegar við höldum, vitum eða sjáum að eitthvað er ekki rétt og þjónar ekki hagsmunum almennings. Þá er skóstærðin rétt.