Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Þungarokk í Stapa
Föstudagur 6. mars 2026 kl. 15:00

Þungarokk í Stapa

Hljómsveitin CHÖGMA heldur þungarokkstónleika í Hljómahöll sunnudaginn 8. mars. Auk CHÖGMA munu hljómsveitirnar Krownest og SÓT spila á tónleikunum. CHÖGMA er framsækin þungarokkshljómsveit (e. progressive metal) frá austfjörðum sem blandar djent, djassi, gruggi og íslenskri þjóðlagatónlist við metalinn. CHÖGMA hefur vakið athygli fyrir ýkta sviðsframkomu og mikinn fjölbreytileika í hljóðfæraleik og söngstílum söngkonu hljómsveitarinnar. Hljómsveitin hefur, svo stiklað sé á stóru, hlotið þriðja sæti og trommuleikara ársins í Músíktilraunum, hitað upp fyrir hljómsveitina Sign, haldið tíu tónleika um allt land í samstarfi við European Solidarity Corps og gefið út singúlinn Veðurfréttir. Hljómsveitin vinnur nú í plötunni Hegðun sem kemur út á næstunni.


Krownest er reykvísk harðkjarna hljómsveit sem má helst lýsa sem blöndu af dauðarokki, nu-metal og slettu af svartmálmi. Krownest hefur á ferli sínum saknað að sér dágóðum aðdáendahópi hérlendis og erlendis, m.a. í gegnum þátttöku sína á Wacken open air árið 2023.
Sót er nýjasta hljómsveitin í hópnum og opnar kvöldið. Tónlist þeirra einkennist af psychedelic, doom, sludge og groove metal. 
Hvar? - Hljómahöll, Stapa,
Hvenær? - Sunnudaginn 8. mars klukkan 20:00. Húsið opnað 19:00
Hvað kostar? - Miðaverð er aðeins 3.000 krónur. Miðasala er á Tix en einnig verður posi við hurð.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk