Fréttir

Áform um átta smáíbúðir á Flugvallarbraut 734  – fer í grenndarkynningu
Húsnæði sem áður hýsti meðal annars dansskóla á Ásbrú verður mögulega breytt í smáíbúðir.
Föstudagur 6. mars 2026 kl. 09:38

Áform um átta smáíbúðir á Flugvallarbraut 734 – fer í grenndarkynningu

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt, með fyrirvara um grenndarkynningu, ósk um breytta nýtingu fasteignar við Flugvallarbraut 734 þar sem gert er ráð fyrir að húsnæðinu verði breytt í átta smáíbúðir. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 6. febrúar. Í húsnæðinu var fyrir nokkrum árum rekin dansskóli og önnur starfsemi.

Samkvæmt erindi Elfoss ehf., er óskað eftir að breyta byggingunni í smáíbúðir með sérinngangi. Í gögnum kemur fram að mögulegt sé að hafa allt að 18 bílastæði sem tengjast eigninni við Flugvallarbraut 734.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Ráðið samþykkti erindið með þeim skilyrðum að grenndarkynning fari fram án athugasemda. Jafnframt var heimilað að stytta kynningartímann, ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta staðfesta skriflega á kynningargögnum að þeir geri ekki athugasemdir áður en fjórar vikur eru liðnar.